Ekki peningur til fyrir nauðsynlegum lyfjum: Íslenskum sjúklingum bjóðast ekki sömu úrræði og nágrönnunum Sveinn Arnarsson skrifar 20. september 2016 06:00 Íslenskir sjúklingar hafa því ekki aðgang að sömu lyfjameðferðum og sjúklingar á Norðurlöndunum. Vísir/Pjetur
Peningar til kaupa á nýjum sjúkrahúslyfjum á þessu ári er uppurnir og nýjum lyfjum hafnað af svokallaðri Lyfjagreiðslunefnd ríkisins. Þetta staðfestir Guðrún Gylfadóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar. Í flestum tilvikum er um að ræða lyf sem eru komin í notkun á öllum hinum Norðurlöndunum. Íslenskir sjúklingar hafa því ekki aðgang að sömu lyfjameðferðum og sjúklingar á Norðurlöndunum. „Afleiðing þessa er að íslenska heilbrigðiskerfið býður alvarlega veiku fólki ekki sömu úrræði í meðferð og sjúklingar fá í þeim löndum sem við höfum viljað bera okkur saman við,“ segir Jakob Falur Garðarsson, framkvæmdastjóri Frumtaka, samtaka frumlyfjaframleiðenda. Þetta þýðir að ný lyf á sviðum þar sem þróunin er mest, til að mynda í krabbameinslækningum og í nýjum gigtarlyfjum, komast ekki á markað hér á landi. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi í febrúar að tryggja meira fé til lyfjakaupa svo unnt yrði að taka í notkun fleiri ný lyf á árinu 2016. Í fjárlögum ársins var gert ráð fyrir rúmum sex milljörðum króna en það fé er nú búið og enn þrír og hálfur mánuður til áramóta. Guðrún Gylfadóttir, formaður Lyfjagreiðslunefndar, segir það rétt að fjármagn sé uppurið og meira til en vill horfa jákvæðum augum á árið. „Við höfum samþykkt mikinn fjölda nýrra lyfja á árinu. Lyfjagreiðslunefnd forgangsraðar stöðugt lyfjum og gerir það í samvinnu við Landspítalann um að tryggja rétta forgangsröðun,“ segir hún.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Tengdar fréttir Lyf lækka í verði vegna styrkingar krónunnar Meðallækkun tíu söluhæstu lyfja er meira en 30 prósent frá árinu 2009. 9. september 2016 19:17 Mest lesið Vilja beita „ofurvopni“ ESB gegn Bandaríkjunum Erlent Setur „stærsta samning í sögunni“ í uppnám Erlent Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Innlent Gríðarleg vonbrigði og mikið áhyggjuefni Erlent Hundruð hermanna í viðbragðsstöðu vegna Minnesota Erlent Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Innlent Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Innlent Líkir kærunni við „faglega aftöku“ Innlent Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Innlent Myndir: Þúsundir mótmæltu á Grænlandi Erlent Fleiri fréttir Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Var í símanum við neyðarlínuna þegar ekið var aftan á hann Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna „Hef hvergi hallað réttu máli“ Önnur stúlka með móður sinni þegar Högni var klófestur Fá þau að vera aftur á lista með Hildi? Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut og tveir fluttir á slysadeild Eigum eftir að sjá hvort Guðbrandur bæti upp fyrir hegðun sína Umfangsmikil lögregluaðgerð við Glerárgötu á Akureyri Öryrkjar eru með hærri laun en eldri borgarar Borgarstjóri fór með rangt mál Gagnrýnin hugsun skipti máli Krafa um að Margrét Löf verði gerð arflaus fer fyrir Landsrétt Hófu niðurrif á félagsheimilinu í leyfisleysi: „Skaðinn er skeður“ Sjá meira
Lyf lækka í verði vegna styrkingar krónunnar Meðallækkun tíu söluhæstu lyfja er meira en 30 prósent frá árinu 2009. 9. september 2016 19:17