Miðaldra með lífshættulega áverka eftir fall á jafnsléttu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 28. apríl 2016 05:00 212 einstaklingar í rannsókn Guðrúnar höfðu hlotið lífshættulega höfuðáverka eftir fall á jafnsléttu eða undir tveggja metra hæð. vísir/vilhelm
Ný rannsókn á faraldsfræði höfuðáverka á Íslandi á árunum 1999-2013 leiðir í ljós hlutfallslega fjölgun höfuðáverka hjá miðaldra fólki eftir fall á jafnsléttu. „Á fjörutíu ára tímabili hefur sjúklingahópurinn breyst mikið. Áður fyrr voru þetta yngri einstaklingar með áverka eftir umferðarslys. En nú er algengasta orsökin fyrir höfuðáverka sjúklings sem leggst inn á gjörgæslu fall úr lítilli hæð. Fólk er sem sagt lífshættulega slasað og lætur jafnvel lífið eftir fall úr neðsta þrepi eða á jafnsléttu,“ segir Guðrún María Jónsdóttir, sérnámslæknir í svæfingu og gjörgæslu á Landspítalanum og rannsakandi. Rannsóknin sýnir marktæka fækkun höfuðáverka í öllum aldursflokkum fyrir utan fjölmennasta hópinn sem er 36-65 ára. Guðrún segir að með forvörnum í umferðinni, hjálmanotkun og bílbeltanotkun auk forvarna hjá elsta aldurshópnum með göngugrindum og að hafa til dæmis ekki mottur á heimilum, hafi náðst góður árangur. Aftur á móti sé áhyggjuefni að þeim fjölgi hlutfallslega sem fái alvarlega höfuðáverka á miðjum aldri.Guðrún María Jónsdóttir, sérnámslæknir í svæfingu og gjörgæslu á Landspítalanum og rannsakandi.vísir/vilhelmRannsóknin veitir ekki svör við þessum breytingum en gefur ákveðnar vísbendingar. Til að mynda eru fleiri sem eru undir áhrifum áfengis. Árið 1999 voru 22 prósent sjúklinga á gjörgæslu með höfuðáverka með áfengi í blóðinu en þeir voru tæplega fjörutíu prósent árið 2013. „Það er erfitt að fullyrða nokkuð um orsakatengsl. Aftur á móti sýna erlendar rannsóknir að 30-60 prósent fólks með alvarlega höfuðáverka séu undir áhrifum áfengis. Þannig er áfengi mögulegur samverkandi þáttur.“ Guðrún segir það vekja furðu hve alvarlega höfuðáverka fólk á besta aldri hlýtur eftir svo lágt fall, jafnvel eftir að hafa eingöngu hrasað um þröskuldinn heima hjá sér. „Ein tilgáta sem vaknaði í gagnavinnslu er aukin notkun blóðþynningarlyfja. Að fólk hljóti alvarlegri áverka vegna þess. Aukin notkun blóðþynningarlyfja tengist hjartasjúkdómum og hjartsláttaróreglu, sem getur tengst lífsstíl fólks.“ Þrátt fyrir framfarir í meðferðum við höfuðáverkum er erfitt að eiga við áverkana. Höfuðáverkar hafa oft mjög alvarlegar afleiðingar, um tuttugu prósent sjúklinga láta lífið og hluti kemst aldrei til meðvitundar eða lifir við mikla fötlun. Því segir Guðrún forvarnir vera mikilvægasta vopnið í baráttunni. „Samkvæmt þessum niðurstöðum þyrfti því mögulega að beina sjónum að forvörnum varðandi áfengisdrykkju og lífsstílssjúkdóma,“ segir hún. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 28. apríl
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent „Skráningum rignir inn“ Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira