Innlent

Skólastjórar með þungar áhyggjur af fjárhagsstöðu grunnskóla

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Börn að leik í Ísaksskóla í Reykjavík.
Börn að leik í Ísaksskóla í Reykjavík. vísir/vilhelm
Stjórn og formenn svæðafélaga Skólastjórafélags Íslands lýsa yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu margra grunnskóla í landinu. Segja þeir óraunhæfar fjárúthlutanir til grunnskóla og niðurskurð allt frá hruni leiða til skerðingar á lögbundinni þjónustu skóla.

Í tilkynningu frá Skólastjórafélaginu segir að mörg sveitarfélög hafi forgangsraðað í þágu nemenda við gerð fjárhagsáætlana en önnur hafa á síðustu árum skorið niður fjármagn til reksturs skólanna. Að mati félagsins virðist það einkum eiga við nokkur af stærstu sveitarfélögunum.

Telur félagið að Reykjavíkurborg notist til að mynda við óraunhæft og úrelt reiknilíkan til að deila út fjármunum til grunnskólanna. Þá hafi launakostnaður vegna sérkennslu og stuðnings við nemendur ekki verið bættur að fullu.

Þá er gerð krafa um að halli verði greiddur upp á næstu tveimur árum. Á þetta hafi skólastjórar ítrekað bent án þess að gerðar hafi verið úrbætur af hálfu borgarinnar.

Segir stjórn félagsins að mikilvægt sé að nemendur njóti grunnþjónustu og að skólastjórum sé gert kleift að sinna lögbundinni þjónustu með raunhæfum fjárhagsáætlunum sem lúta að því að efla faglegt skólastarf með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.


Tengdar fréttir

Segja niðurskurð bitna á nemendum

Samtök foreldra og skólastjóra hafa verulegar áhyggjur vegna boðaðs niðurskurðar hjá skóla- og frístundasviði í Reykjavík á þessu ári. Óttast mest að stuðningur við börn með sérþarfir verði ekki nægur. Skólastjórar segjast ber




Fleiri fréttir

Sjá meira


×