Nýju kopparnir bara plastrusl sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 29. apríl 2016 10:05
Yfir tvö hundruð hjólkoppar úr fórum frægasta koppasala landsins, Þorvaldar Norðdahl, eða Valda Koppasala líkt og hann er jafnan kallaður, eru nú til sýnis í húsakynnum Krúser-klúbbsins að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Sýningin var opnuð í gær og aftur næsta fimmtudag frá klukkan 19-23. Valdi tók á móti gestum í gærkvöldi og flutti ávarp, ásamt því sem hann valdi tónlist sem hann telur við hæfi fyrir þessi kvöld og tengjast liðinni tíð eins og kopparnir.Valdi hefur komið upp einstöku safni.vísir/ernirKvöldfréttir Stöðvar 2 litu við hjá Valda í gær. Aðspurður sagðist Valdi hafa átt í smávægilegum erfiðleikum með að velja hvaða koppar yrðu til sýnis. „Erfitt að velja? Jú það var hrikalegt. Nei það var ekkert erfitt, ég á svo mikið. Fulla skemmu af alls konar rusli,“ sagði hann. Valdi segist jafnframt eiga erfitt með að segja til um hver hans uppáhalds koppur sé, en segir hjólkopp af Ford 56 þó ofarlega í huga. Gömlu kopparnir séu hins vegar flottastir. „Þessir nýju, það er bara eitthvað plastrusl á þeim;“ svaraði hann. Aðspurður hversu marga koppa hann hafi handleikið um ævina sagði hann: „Þetta er hrikaleg spurning, nei en vinur minn hann Óli er búinn að telja koppana og þeir eru 220 talsins.“ Ernir Eyjólfsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, leit við hjá Valda í gær og tók meðfylgjandi myndir. Þá má sjá viðtalið við Valda í spilaranum efst í fréttinni.Sýningin er haldin í húsakynnum Krúser-klúbbsins að Höfðabakka 9 í Reykjavík.vísir/ernirValdi flutti ávarp í tilefni opnunarinnar í gærkvöldi.vísir/ernirSýningin verður opin gestum og gangandi næsta fimmtudagskvöld.vísir/ernirvísir/ernirÞorvaldur Norðdahl, eða Valdi koppasali.vísir/ernir
Tengdar fréttir Valdi koppasali undirbýr sýningu Í yfir hálfa öld hefur Valdi koppasali selt hjólkoppa við Suðurlandsveg. Þótt viðskiptin séu lítil í dag er Þorvaldur Norðdahl enn með hugann við koppana. Hann undirbýr nú sýningu á mestu djásnunum. 16. mars 2016 06:00 Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira
Valdi koppasali undirbýr sýningu Í yfir hálfa öld hefur Valdi koppasali selt hjólkoppa við Suðurlandsveg. Þótt viðskiptin séu lítil í dag er Þorvaldur Norðdahl enn með hugann við koppana. Hann undirbýr nú sýningu á mestu djásnunum. 16. mars 2016 06:00