Brot í Kaupþingsmáli „með þeim alvarlegustu sem dæmi eru um“ Þorbjörn Þórðarson skrifar 6. október 2016 18:49
Hæstiréttur þyngdi í dag dóm yfir Hreiðari Má Sigurðssyni fyrrverandi forstjóra Kaupþings og sneri við sýknudómum yfir tveimur öðrum fyrrverandi starfsmönnum bankans í stærsta efnahagsbrotamáli sem komið hefur til kasta dómstóla hér á landi. Í dómi Hæstaréttar segir að brotin í málinu séu með þeim alvarlegustu sem dæmi eru um í íslenskri dómaframkvæmd varðandi efnahagsbrot. Níu fyrrverandi starfsmenn Kaupþings banka voru ákærðir fyrir markaðsmisnotkun fyrir viðskipti bankans með eigin hlutabréf í sjálfvirkum pörunarviðskiptum Kauphallar Íslands og kauphallarinnar í Svíþjóð á tímabilinu 1. nóvember 2007 til. 8. október 2008. Voru ákærðu í málinu sökuð um að hafa brotið gegn lögum um verðbréfaviðskipti með því að tryggja óeðlilegt verð og búið til verð á hlutabréfunum sem gáfu eða voru líkleg til að gefa eftirspurn og verð þeirra ranglega og misvísandi til kynna. Í ákæru kom fram að kaup deildar eigin viðskipta í Kaupþingi banka umfram sölu á íslenska markaðnum námu 41% af heildarveltunni í sjálfvirkum pörunarviðskiptum með hlutabréf í Kaupþingi. Kaup umfram sölu á sænska markaðnum námu 23% af heildarveltunni með hlutabréf í Kaupþingi. Vegna lögbundinna takmarkana á eignarhaldi, reglna um flöggunarskyldu og neikvæðra áhrifa á eiginfjárhlutfall afréðu stjórnendur Kaupþings að losa bankann við hlutabréfin svo unnt væri að halda áfram hinum umfangsmiklu kaupum á hlutum í bankanum í sjálfvirkum pörunarviðskiptum. Var það gert með sölu hlutabréfa í bankanum í stórum utanþingsviðskiptum til þriggja félaga fyrir tilstilli hlutabréfamiðlunar bankans með loforði til kaupenda um fulla fjármögnun bankans í viðskiptunum. Ákæruvaldið taldi að með því að standa að sölu hlutabréfanna með þessum hætti til félaganna þriggja hafi ranglega verið látið líta svo út að þau hefðu lagt fé til kaupanna og borið af þeim fulla markaðsáhættu þegar reyndin hafi verið sú að kaupin voru að fullu fjármögnuð með lánveitingum frá bankanum sem bar sem seljandi áfram fulla markaðsáhættu af hlutabréfunum, enda voru ýmist litlar eða engar aðrar tryggingar fyrir endurgreiðslu lánanna en hlutabréfin sjálf. Þessi viðskipti hafi því byggst á blekkingum og sýndarmennsku og þannig gefið eftirspurn eftir hlutabréfunum ranglega til kynna. Því hefði líka verið um markaðsmisnotkun að ræða við sölu á hlutabréfum til umræddra þriggja félaga. Þá var einnig ákært fyrir umboðssvik vegna lánveitinga Kaupþings banka til umræddra einkahlutafélaga í tengslum við kaup á bréfunum. Ákærðu í málinu voru Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson, Ingólfur Helgason, Einar Pálmi Sigmundsson, Birnir Snær Björnsson, Pétur Kristinn Guðmarsson, Magnús Guðmundsson, Bjarki H. Diego og Björk Þórarinsdóttir. Í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur voru öll ákærðu sakfelld nema Björk sem var sýknuð og þá var ákæru á hendur Magnúsi vísað frá að hluta og hann sýknaður að hluta. Hreiðari Má var ekki gerð viðbótar refsing í héraði vegna dóms sem hann hlaut í Al-Thani málinu. Í dag var kveðinn upp dómur í málinu í Hæstarétti. Hæstiréttur þyngdi dóminn yfir Hreiðari Má og dæmdi hann í sex mánaða hegningarauka ofan á fimm og hálfs árs fangelsi sem hann hafði áður hlotið. Björk Þórarinsdóttir sem var sýknuð í héraði var sakfelld fyrir tilraun til umboðssvika sem reyndist ónothæf og var henni ekki gerð refsing. Þá var Magnús Guðmundsson sakfelldur fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun en ekki gerð viðbótarrefsing. Dómur yfir öðrum ákærðu var staðfestur. Björn Þorvaldsson saksóknari í málinu kynnir sér dóm Hæstaréttar að lokinni dómsuppkvaðningu í dag. Hann kvaðst sáttur með niðurstöðuna.Í dómi Hæstaréttar segir: „Við ákvörðun refsingar verður að líta til þess að brot samkvæmt I. og II. kafla ákæru voru umfangsmikil, þaulskipulögð og drýgð í samverknaði og af einbeittum ásetningi. Beindust þau í senn að öllum almenningi og fjármálamarkaðnum hér á landi í heild og verður tjónið sem leiddi af þeim beint og óbeint ekki metið til fjár. Voru brotin með þeim alvarlegustu sem dæmi eru um í íslenskri dómaframkvæmd varðandi efnahagsbrot.“ Björn Þorvaldsson saksóknari í málinu kvaðst sáttur við niðurstöðuna að lokinni dómsuppkvaðningu enda tók Hæstiréttur undir nær öll sjónarmið ákæruvaldsins í málinu. Um er að ræða umfangsmesta efnahagsbrotamál sem komið hefur til kasta dómstóla hér á landi þegar höfð er hliðsjón af fjölda ákærðu, flækjustigi ákæruatriða og gögnum málsins.
Tengdar fréttir Verjandi Hreiðars Más segir hann ekki hafa verið í aðstöðu til að fylgjast með viðskiptunum Hörður Felix segir að ekkert hafi gefið til kynna á þeim tíma þegar meint brot áttu sér stað að það væri óheimilt fyrir útgefendur hlutabréfa að stunda viðskipti með þau sömu bréf. 9. september 2016 12:15 Saksóknari harðorður: „Enn stærri skellur fyrir þjóðfélagið“ "Þegar spilaborgin hrundi eins og hún hlaut að gera,” sagði Björn Þorvaldsson saksóknari í Hæstarétti í morgun. 9. september 2016 09:52 Hæstiréttur þyngdi dóm Hreiðars Más í markaðsmisnotkunarmálinu Aðrir dómar úr héraði óraskaðir. 6. október 2016 15:00 Mest lesið Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hótar þrjátíu prósenta tolli á ESB Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Sjá meira
Verjandi Hreiðars Más segir hann ekki hafa verið í aðstöðu til að fylgjast með viðskiptunum Hörður Felix segir að ekkert hafi gefið til kynna á þeim tíma þegar meint brot áttu sér stað að það væri óheimilt fyrir útgefendur hlutabréfa að stunda viðskipti með þau sömu bréf. 9. september 2016 12:15
Saksóknari harðorður: „Enn stærri skellur fyrir þjóðfélagið“ "Þegar spilaborgin hrundi eins og hún hlaut að gera,” sagði Björn Þorvaldsson saksóknari í Hæstarétti í morgun. 9. september 2016 09:52
Hæstiréttur þyngdi dóm Hreiðars Más í markaðsmisnotkunarmálinu Aðrir dómar úr héraði óraskaðir. 6. október 2016 15:00