Ugla gerir sig heimakomna í hlöðu í Fnjóskadal Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 17. mars 2016 21:00 Brandugla ein hefur komið sér fyrir í hlöðu í Fnjóskadal. Mynd/Guðbergur Egill Eyjólfsson.
Guðbergur Egill Eyjólfsson, bóndi á Brúnagerði í Fnjóskadal náði myndum af óvæntum næturgesti í hlöðunni á Brúnagerði. Myndarlegasta brandugla hefur þar gert sig heimakomna. Guðmundur segir það æ algengari sjón að sjá uglur í Fnjóskadalnum. „Það fauk ein járnplata af hlöðunni í vondu veðri hérna fyrir nokkru og hún hefur komist þar inn,“ segir Guðmundur. „Hún virðist ekki finna leiðina út en ég er búinn að opna stórt hlöðugat og vonandi kemst hún út í nótt.“ Sem unglingur var Guðbergur í sveit í Grýtubakkahrepp og minnist hann þess að hafa nokkrum sinnum orðið var við uglur á þeim tíma. Síðastlið sumar hafi hann hinsvegar reglulega séð uglur víða um Fnjóskadal.Uglan er nokkuð myndarleg.Mynd/Guðbergur Egill Eyjólfsson„Ég man eftir að hafa séð ugluunga rölta yfir þjóðveginn þegar ég var unglingur. Maður sá uglur kannski svona einu sinni til tvisvar á þessum 10-15 árum,“ segir Guðmundur. „Síðasta sumar sá maður uglur víða í dalnum og hann er nú svolítið langur. Maður hrekkur orðið allavega ekki í kút þegar maður sér þær. Samkvæmt upplýsingum frá Vísindavefnum er branduglan eini reglulegi varpfuglinn af ugluætt hér á landi þó að snæuglan eigi það til að líta við. Verpa branduglur aðallega á láglendi og þá einkum í Þingeyjarsýslu og Eyjafirði en einnig í Borgarfirði. Mýs eru helsta fæða brandugla og þá aðallega hagamýs en einnig húsamýs. Litlir vað- og spörfuglar eru einnig mikilvæg fæða.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira