Valdi koppasali undirbýr sýningu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 16. mars 2016 06:00 "Láttu símanúmerið 865 2717 endilega fylgja með,“ segir Valdi koppasali sem stendur hér í hjarta ríkis síns. Vísir/Vilhelm „
Ég nenni að minnsta kosti ekki að tala um pólitík – hún er svo leiðinleg,“ er það fyrsta sem Valdi koppasali segir þegar útsendarar Fréttablaðsins birtast á hlaðinu hjá honum við Hólmsá og falast eftir viðtali. Þorvaldur Norðdahl er eins og viðurnefni hans gefur til kynna þekktastur fyrir að selja hjólkoppa. Hann er orðinn 63 ára en var bara strákur þegar þegar koppaævintýrið byrjaði. „Ég byrjaði í hjólkoppunum árið 1962,“ segir Valdi sem gegn um árin hefur bjargað mörgum um ódýra hjólkoppa þegar þeir hafa hrokkið af bílum þeirra. Mjög mikið dró úr eftirspurn eftir hjólkoppum þegar framleiðendur byrjuðu að útbúa bíla sína með álfelgum sem enga koppa þarf að setja yfir. Það er því ekki mikið um að vera í viðskiptunum hjá Valda. Hann segist þó enn stússa í koppunum sem skipta mörgum þúsundum í skúrnum hans við Hólmsá.Margir landsmenn kannast við skilti Valda við vegakantinn. Vísir/Vilhelm„Nú, það þarf nú ekki að spyrja að því, það er alltaf Ford, Volkswagen eða Toyota því kopparnir á þessum tegundum detta svo auðveldlega af,“ svarar Valdi spurður að því hvort hann viti alltaf hvort hann eigi tiltekinn hjólkopp og þá hvar hann er í öllum koppastöflunum. Valdi undirstrikar vandlega að ekki sé sama koppur og koppur. Lítið sé varið í seinna tíma plastkoppa. Öðru máli gegni um gömlu, ekta málmkoppana sem hann á enn mikið af og hefur í öndvegi í skúrnum. „Ég er að bíða eftir að það verði tæmdur fatalager í húsnæði við Höfðabakka svo ég geti sett upp sýningu á hundrað koppum frá mér í sal þar á bak við,“ upplýsir Valdi sem kveðst vonast til að sýningin verði að veruleika á næstu mánuðum. Þar verði koppar frá árinu 1953 og fram á áttunda áratuginn. Koppasýninguna ætlar Valdi að setja upp í samstarfi við Krúser-klúbbinn sem er félagsskapur fornbílaeigenda. Slíkir bílar eru einmitt eitt stærsta áhugamál koppasalans. „Það er alloft lítið fjallað um fornbíla í fjölmiðlum,“ segir Valdi sem telur að ekki sé nógu mikil virðing borin fyrir fornbílum. Hann rifjar alvarlegur upp sögu af félaga sínum sem var að skoða sig um bílahrúgunni hjá endurvinnslufyrirtækinu Hringrás á Akureyri þegar hann kom auga á mjög álitlegan fornbíl sem hann bað um að fá. „Þeir hífðu þá bílinn upp og settu hann skellihlæjandi beint í pressuna fyrir framan nefið á honum. Þeir hjá Hringrás bera enga virðingu fyrir menningarverðmætum. Það þarf að stofna fornbílafriðunarnefnd til að bjarga bílum eldri en 25 ára frá glötun,“ segir Þorvaldur Norðdahl.Fréttamaður Stöðvar 2 leit við hjá Valda árið 2013 og fékk að sjá hjólkoppana, líkt og sjá má í spilaranum hér fyrir neðan.
Mest lesið Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Hótuðu að loka Vogi Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent Tuttugu lögðu ólöglega Innlent Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Innlent Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Innlent Eldur í bíl í Heiðmörk Innlent Arnarfell dregið til Færeyja Innlent Framtíð kanslarans í húfi Erlent Fleiri fréttir Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Mátti ekki binda nautin í tvo mánuði fyrir slátrun Fluttur á lögreglustöð til að sanna hver hann væri Engin hamsatólg í boði með skötunni nema einhver taki við framleiðslunni Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér Átök innan SÁÁ eins og „klassísk valdabarátta“ Ný umgjörð um daggæslu til skoðunar í ráðuneytinu Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjá meira