Kielce Evrópumeistari eftir rosalega endurkomu og vítakeppni Anton Ingi Leifsson skrifar 29. maí 2016 18:23 Leikmenn Kielce fagna. vísir/getty
Kielce er sigurvegari í Meistaradeild Evrópu eftir að liðið sigraði í úrslitaleiknum í dag eftir vítakastkeppni. Lokatölur 39-38. Veszprém byrjaði af miklum krafti og var þremur mörkum yfir, 7-4, eftir þrettán mínútna leik. Kielce náði mest að minnka muninn í eitt mark, 13-12, en nær komust þeir ekki í fyrri hálfleik. Ungversku meistararnir leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 17-13. Þeir gáfu ekki tommu eftir og voru komnir átta mörkum yfir þegar tíu mínútur voru liðnar af síðari hálfleik, 24-16. Aron Pálmarsson stýrði sóknarleik Veszprém af mikilli festu og sóknarleikur þeirra gekk eins og vel smurð vél framan af. Flestir héldu að leiknum væri lokið eftir að Veszprém komst í 28-19, en þá komu níu mörk í röð frá Kielce og þeir jöfnuðu metin í 28-28. Lygilegur kafli og Veszprém skoraði ekki í tólf og hálfa mínútu, en Laszlo Nagy braut loksins ísinn tveimur mínútum fyrir leikslok þegar hann kom Veszprém í 29-28. Kielce virtist vera að klúðra málunum þegar Manuel Strlek klúðraði víti rúmri mínútu fyrir leikslok, en þeir fengu annað tækifæri og Krzysztof Lijewski jafnaði metin þremur sekúndum fyrir leikslok. 29-29 eftir venjulegan leiktíma. Því þurfti að grípa til framlengingar. Ungverjarnir voru einu marki yfir eftir fyrri hálfleik framlengarinnar, 34-33, en Cristian Ugalde jafnaði fimm sekúndum fyrir leikslok, 34-34 og því þurfti að grípa til vítakastkeppni. Gasper Marguc og Mirsad Tersic klúðruðu vítum fyrir Veszprém, en Ivan Cupic klúðraði fyrsta vítinu hjá Kielce. Aguinagalde tryggði svo Kielce sigur með því að skora úr síðasta vítinu. Aron spilaði mjög mikið í leiknum, en hann skoraði að endingu sex mörk úr tíu skotum og átti nokkrar glæsilegar sendingar. Þetta er fyrsti Evróputitill Kielce, en leikmenn Veszprém geta sjálfum sér um kennt hvernig þeir köstuðu þessum leik frá sér.
Handbolti Mest lesið Fimmtíu og þrír handteknir á Wembley í tengslum við úrslitaleikinn Fótbolti „Hlupu eins og vindurinn hér í logninu í Annecy“ Sport Sjáðu mörkin þegar Real tryggði sér Evrópubikarinn Fótbolti Nökkvi mætti Messi í markaleik í nótt Fótbolti Landsliðskonan náði á kjörstað fyrir lokun Sport Dagskráin í dag: Kópavogsslagur í Bestu deildinni Sport Mahomes í hlutverki leiðsögumanns í heimsókn Chiefs í Hvíta húsið Sport Markavélin spennt fyrir skiptum til Arsenal Enski boltinn Slakur árangur og samskiptaleysi ástæðan fyrir brottvikningu Brynjars Björns Fótbolti „Menn þurfa að gera sér grein fyrir að við erum í botnbaráttu, engu öðru“ Fótbolti Fleiri fréttir Urðu að sætta sig silfrið þrátt fyrir magnaða endurkomu Karabatic skaut niður markvörðinn í síðasta skoti ferilsins Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Sjá meira