Grunaður um gróft kynferðisbrot en finnst ekki Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. febrúar 2016 11:30 Árásin átti sér stað um áttaleytið á mánudagsmorgun og var lögregla kölluð á vettvang. Vísir/Anton Brink
Karlmaðurinn sem grunaður er um að hafa villt á sér heimildir til að komast inn á heimili móður í Hafnarfirði og ráðist á hana er enn ófundinn. Árásin átti sér stað um áttaleytið á mánudagsmorgun og var lögregla kölluð á vettvang. Maðurinn á að hafa sagst vera á vegum orkufyrirtækis og þurfa að lesa af mælum. Konan hleypti honum inn þar sem hann réðst á hana. Er hann grunaður um að hafa beitt konuna kynferðislegu ofbeldi. Hún var ein heima með ungbarn.Lögregla lýsti eftir manninum á miðvikudag en greindi ekki frá því hvers vegna hún óskaði eftir upplýsingum um manninn. Árni Þór Sigmundsson, yfirmaður kynferðisbrotadeildar lögreglu, staðfestir við Vísi að maðurinn sé ófundinn en nokkrar vísbendingar hafi borist.Forgangsmál hjá lögreglu Maðurinn er talinn vera um 180 sm á hæð, fölleitur og dökkklæddur og var með svarta hanska og húfu. Hann er talinn vera á aldrinum 35-45. Lögregla hefur að öðru leyti ekki viljað upplýsa að hverju rannsóknin snýr vegna rannsóknarhagsmuna. Árni staðfestir þó að verið sé að vinna úr vísbendingum og kæra liggi fyrir í málinu. Þá heyrir málið undir kynferðisbrotadeild. Samkvæmt heimildum Vísis er málið algjört forgangsmál innan raða lögreglu. Þeir sem geta veitt upplýsingar um manninn og ferðir hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögreglu á skrifstofutíma í síma 444 1000, en upplýsingum má einnig koma á framfæri á netfangið abending@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Tengdar fréttir Grunaður um árás á konu á heimili hennar Lögregla leitar árásarmannsins en konan var ein heima hjá sér með ungbarn á mánudagsmorgun þegar bankað var á dyrnar. 18. febrúar 2016 11:30 Lögregla leitar dökkklædds manns með svarta hanska og húfu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni sem var á ferli í Móabarði í Hafnarfirði um áttaleytið á mánudagsmorgun, 15. febrúar. 17. febrúar 2016 13:23 Hinn grunaði þóttist þurfa að lesa af mælum Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur og HS Veitna segja starfsmenn á þeirra vegum ekki banka upp á heima hjá fólki snemma á morgnana. 18. febrúar 2016 12:30 Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ Innlent Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira
Grunaður um árás á konu á heimili hennar Lögregla leitar árásarmannsins en konan var ein heima hjá sér með ungbarn á mánudagsmorgun þegar bankað var á dyrnar. 18. febrúar 2016 11:30
Lögregla leitar dökkklædds manns með svarta hanska og húfu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að karlmanni sem var á ferli í Móabarði í Hafnarfirði um áttaleytið á mánudagsmorgun, 15. febrúar. 17. febrúar 2016 13:23
Hinn grunaði þóttist þurfa að lesa af mælum Forsvarsmenn Orkuveitu Reykjavíkur og HS Veitna segja starfsmenn á þeirra vegum ekki banka upp á heima hjá fólki snemma á morgnana. 18. febrúar 2016 12:30