Áskorun! Hólmgeir Baldursson skrifar 9. febrúar 2016 07:00 Gististaðir kalla nú eftir því að girt sé fyrir ólögmæta starfsemi þar sem boðin er gisting án tilskilinna leyfa. Mér varð hugsað til fjölmargra gististaða sem hundsa að afla sér tilskilinna leyfa til að bjóða gestum sínum afþreyingu. Líta á það sem sjálfsagt mál að tengja bara eitthvað frá einhverjum án þess að gæta að því að sjónvarpsefni er höfundarvarið. Sportbarir spretta nú upp eins og gorkúlur og telja það í góðu lagi að tengja Sky myndlykil frá Englandi og opna dyrnar fyrir viðskiptavini. Þetta er ekki í lagi. Einhverjir kynnu að halda að bareigandinn sem keypti gríska myndlyklaáskrift hefði eitthvað breytt þessu, en svo er ekki. 365 er einkarétthafi Premier League hér á landi en ekki Sky eða aðilar sem „kenna“ sig við þá hér á landi. Þeir bjóða þetta án þeirra leyfis eða samþykkis auðvitað. BSkyB rekur ekki neitt „söluapparat“ hér á landi, þannig að það sé öllum ljóst. Ég rek sérhæft sjónvarpsfyrirtæki sem er leyfishafi fjölmargra erlendra & innlendra sjónvarpsstöðva sem er ástæða þess að ég rita þessa grein. Við erum einmitt að kynna starfsemina fyrir aðilum sem reka sportbari, hótel, gistiheimili og aðra starfsemi þar sem sjónvarp er notað til að auka ánægju gesta til afþreyingar eða upplýsinga. Ný hótel sem einnig spretta upp virða ekki réttindi þessara sjónvarpsstöðva eins og BBC, CNN og fleiri heldur „kaupa“ alls kyns „tengingar“ af fyrirtækjum og einstaklingum sem flagga alls kyns „fullyrðingum“, en ljóst er að réttur til að veita slíka þjónustu má aldrei vera í vafa og því eru rekstraraðilar hvattir til að kynna sér þessi mál og láta sig það varða að eiga viðskipti við aðila sem sannanlega eru rétthafar sjónvarpsefnisins hér á landi, því hver er eiginlega tilgangur þess að semja um réttindi eins og við gerum hér og svo veður allt uppi í all skyns vitleysu og enginn tekur ábyrgð? Er það sanngjarnt að hótel eða sportbar sem kýs að hafa sín samningsmál á hreinu og greiðir afnot til rétthafans þurfi að horfa upp á næsta aðila við hliðina hegða sér eins og sjóræningi? Það er bara ekki í lagi. Hér er verið að reyna að höfða til viðskiptasiðferðis rekstraraðila því lögaðgerðir og annað vesen skila aldrei neinu nema leiðindum og kostnaði. Sky Sports, ITV, Film4, True Movies, BBC1, BBC2 & BBC3 eru ekki lögmætar stöðvar hér á landi. Það má ekki selja þær til rekstraraðila. Og eitt að lokum, Rafverktakar: Hættið nú að bjóða ólöglegt sjónvarpsefni til hótela og gistiheimila, því ekki tengja þetta menn sem ekki kunna neitt til verka. Þessu verður ekki breytt á einni nóttu svo mikið er víst, en sá dagur mun renna upp fyrr en síðar að hér á landi mun þrífast heilbrigður markaður með áskrift að höfundarvörðu sjónvarpsefni og rekstraraðilar munu sjá sóma sinn í því að miðla efni sem fengið er eftir lögmætum dreifingarleiðum til viðskiptavina sinna. Vonandi er sá dagur skammt undan. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Halldór 01.06.2024 Halldór Svona getum komið í veg fyrir að Katrín vinni Björn B. Björnsson Skoðun Ástþór Magnússon í spádómum? Gunnar Karl Halldórsson Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson Skoðun Má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir Skoðun Barnapíu á Bessastaði! Karl Sigurðsson Skoðun Halla Tómasdóttir og Sólskinsdrengurinn Margrét Dagmar Ericsdóttir Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Skoðun Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Skoðun Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Skoðun Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Skoðun Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Skoðun Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Skoðun Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Skoðun Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Skoðun Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Skoðun Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Skoðun Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Skoðun Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Skoðun Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Skoðun Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Skoðun Persónan Katrín Jakobsdóttir Sólveig Hildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Tóbak markaðssett fyrir ungt fólk Guðlaug B. Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Forsetinn, NATÓ, ýsan og blokkin Guðfinnur Sigurvinsson skrifar Skoðun „Svona er á síld“ Stefán Hilmarsson skrifar Skoðun Aldrei hitta hetjurnar þínar Skarphéðinn Guðmundsson skrifar Skoðun Yfirtaka orðræðunnar (e. hijacking) Sóley Tómasdóttir skrifar Sjá meira