Reitir högnuðust um 7,4 milljarða í fyrra Samúel Karl Ólason skrifar 17. febrúar 2016 20:59 Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.
Reitir fasteignafélag skilaði 7,397 milljörðum króna í hagnað í fyrra. Samkvæmt ársreikningum félagsins jukust tekjur þess um 4,8 prósent á milli ára. Stjórn Reita leggur til að rúmur milljarður verði greiddur í arð. „Afkoma Reita á árinu 2015 og arðsemi er góð,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita í tilkynningu. „Rekstrarhagnaður ársins var í takti við væntingar stjórnenda og útgefnar áætlanir um afkomu, en til viðbótar hækkaði virði eigna félagsins jafnt og þétt yfir árið. Arðsemi eigin fjár er um 17 prósent á árinu og arðsemi tekjuberandi eigna um 6,2 prósent.“ Enn fremur segir hann að 2015 hafi verið fyrsta rekstrarár félagsins eftir mikla endurskipulagningu efnahagsreiknings þess. Endurfjármögnun hafi gefið félaginu tækifæri til að taka stór skref í eignasafns Reita með kaupum og sölum eigna og eignasafna. „Helst ber að nefna í því samhengi kaup á dótturfélaginu Reitir Hótel Ísland sem á fasteignina Ármúla 9 fyrir um 3.800 milljónir króna og kaup á nokkrum fasteignafélögum í rekstri Stefnis að heildarvirði 17.980 milljónir króna, en þau viðskipti eru háð fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins.“ Leigutekjur ársins voru 8.927 milljónir króna en 8.515 milljónir 2014. Rekstrarkostnaður fjárfestingaeigna var 2.120 milljónir sem er svipað og árið áður. Eigið fé Reita er tæpir 47 milljarðar króna. Frekari upplýsingar má finna á vef Reita.
Tengdar fréttir Hlutabréf hækkuðu um tugi prósenta Greiningardeildir telja fyrirtækin í Kauphöllina ekk yfirverðlögð þrátt fyrir miklar hækkanir. 6. janúar 2016 08:00 Reitir kaupa Skútuvog 3 Áætlaðar leigutekjur af Skútuvogi 3 nema rúmlega 67 milljónum króna á ársgrundvelli. 2. september 2015 11:45 Reitir kaupir fasteignafélög fyrir sautján milljarða Um er að ræða tæplega 37.500 fermetra af húsnæði, meðal annars Hótel Borg. 12. október 2015 23:12 Mest lesið Valsstelpa í lyfjabyltingu: „Ég var alltaf svolítið skrýtin blanda“ Atvinnulíf Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis Neytendur Murdoch-feðgar verði meðal kaupenda TikTok Viðskipti erlent Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Viðskipti innlent Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Viðskipti innlent Vélfag stefnir ríkinu Viðskipti innlent Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Viðskipti innlent Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vélfag stefnir ríkinu Meirihluti í SA andvígur ESB aðild Ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri Advania á Akureyri Syndis kaupir sænskt fyrirtæki Tveir nýir stjórnendur hjá Símanum Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Sjá meira
Hlutabréf hækkuðu um tugi prósenta Greiningardeildir telja fyrirtækin í Kauphöllina ekk yfirverðlögð þrátt fyrir miklar hækkanir. 6. janúar 2016 08:00
Reitir kaupa Skútuvog 3 Áætlaðar leigutekjur af Skútuvogi 3 nema rúmlega 67 milljónum króna á ársgrundvelli. 2. september 2015 11:45
Reitir kaupir fasteignafélög fyrir sautján milljarða Um er að ræða tæplega 37.500 fermetra af húsnæði, meðal annars Hótel Borg. 12. október 2015 23:12