Þörf á að endurskoða nýja skatta á fyrirtæki Sæunn Gísladóttir skrifar 14. janúar 2016 07:00 Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, vill láta minnka fyrirtækjaskatta eftir að dregið hefur verið úr skuldum íslenska ríkisins. Hér séu skatttekjur og útgjöld ríkisins með því mesta sem þekkist. Fréttablaðið/Stefán
Skattar á fyrirtæki eru nær hvergi hærri meðal OECD-ríkja en á Íslandi. Árlegur tekjuauki nýrra skatta sem lagðir voru á fyrirtæki eftir hrun nemur 85 milljörðum króna. Þetta samsvarar næstum því útgjöldum ríkisins til löggæslu og menntamála. Engin áform eru um að draga þessa skatta til baka. Þetta getur skert samkeppnishæfni fyrirtækja og á endanum eru áhrifin neikvæð fyrir neytandann sem greiðir hærra verð. Þetta er mat Ásdísar Kristjánsdóttur, forstöðumanns efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, en hún hefur verið að rannsaka breytingar á skattkerfinu frá árinu 2008 og kynnir efnið á Skattadegi Deloitte í dag. Hlutdeild fyrirtækjaskatta í heildarskatttekjum ríkisins hefur vaxið skarpt síðustu árin. Nú er svo komið að ríkisútgjöld eru farin að vaxa á ný en eftir standa nýir skattar sem enn hafa ekki verið dregnir til baka. Ásdís telur mikilvægt að miðla því að á endanum greiði einstaklingar þessa skatta. „Tilhneigingin hefur verið sú að aukin skattlagning á fyrirtæki sé í lagi, á meðan fyrirtækin borga meira þá borgi einstaklingar minna. Hins vegar er raunin sú að kostnaður af fyrirtækjasköttum er alltaf borinn af einstaklingum, það er eigendum, launþegum eða viðskiptavinum, spurningin er bara hvernig kostnaðurinn dreifist,“ segir Ásdís. Skattar á bæði fyrirtæki og einstaklinga eru nú hærri hér á landi en fyrir hrun. Frá árinu 2008 hafa verið gerðar 176 breytingar á skattkerfinu, 132 skattahækkanir og 44 skattalækkanir, flestar á árinu 2014. Ef horft er til fyrirtækjaskatts, en tryggingagjaldið dregið frá, þá eru skattar á Íslandi einir þeir hæstu meðal OECD-ríkja, fimm prósent af landsframleiðslu samanborið við þrjú prósent meðaltal OECD-ríkja. Skattur sem eingöngu leggst á fyrirtæki hefur farið úr því að vera 1,7 prósent á árinu 2003 í 4,9 prósent á árinu 2014. Á sama tíma hafa margar þjóðir lagt aukna áherslu á að styðja við fyrirtækin í landinu og fremur lækka skattprósentu fyrirtækja en að auka hana. „Til skamms tíma geta fyrirtæki dregið úr arðsemi sinni þegar til skattahækkana kemur, en til langs tíma munu hækkanir lenda á neytandanum eða launþega. En allir þessir þættir eru til þess fallnir að draga úr samkeppnishæfni fyrirtækja og það á við um alla geira,“ segir Ásdís. Hún telur að til að draga úr fyrirtækjasköttum verði að draga úr ríkisútgjöldum fyrst. Heildarskatttekjur hins opinbera á Íslandi eru næsthæstar meðal OECD-ríkja, en svipaða sögu er að segja um útgjöld hins opinbera. „Staðan er þannig að afkoman er lítil sem engin. Það sem mér finnst að eigi að vera forgangsmál hjá stjórnvöldum er að byrja á því að hamla útgjaldavexti. Ef stjórnvöld ætla sér alltaf að auka útgjöld þegar tekjurnar aukast, þá verður aldrei svigrúm til að draga eitt né neitt til baka. Það þarf að finna leiðir til að minnka umsvif ríkisins. Forgangsraða betur í ríkisrekstri og þannig skapa svigrúm til að draga til baka þessar skattahækkanir,“ segir hún. „Á sama tíma og hér ríkir góðæri þá er ekki hægt að lækka skatta nema til mótvægisaðgerða verði gripið á útgjaldaliðnum. Forgangsmál er að lækka tryggingagjaldið,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir.
Mest lesið Skora á Isavia að stækka „ræningjarennuna“ Neytendur Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Viðskipti innlent Horfur á húsnæðismarkaði versna Viðskipti innlent Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Viðskipti innlent Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Viðskipti innlent „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Viðskipti innlent Verkfallið skaði orðspor Íslands Viðskipti innlent Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Ágúst til ADVEL Viðskipti innlent Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Sjá meira