Einkareknir ljósvakamiðlar slökkva á útsendingum sínum á fimmtudag Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2016 13:20 Þetta verður gert til að árétta ákall forsvarsmanna einkarekinna fjölmiðla á Íslandi um að fjölmiðlalögum verði breytt til þess að jafna samkeppnisstöðu þeirra á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Vísir/Andri Marinó
Einkareknir ljósvakamiðlar á Íslandi munu slökkva á útsendingum sínum í sjö mínútur fimmtudagskvöldið 1. september næstkomandi. Þetta verður gert til að árétta ákall forsvarsmanna einkarekinna fjölmiðla á Íslandi um að fjölmiðlalögum verði breytt til þess að jafna samkeppnisstöðu þeirra á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá Arnþrúði Karlsdóttur fyrir hönd Útvarps Sögu, Ingva Hrafni Jónssyni fyrir hönd ÍNN, Rakel Sveinsdóttur fyrir hönd miðla Hringbrautar, Orra Haukssyni fyrir hönd Símans og Sævari Frey Þráinssyni fyrir hönd 365 miðla. Þar segir að afar mikilvægt sé að einkareknir fjölmiðlar sitji við sama borð og erlendir keppinautar sem nú herji bæði á áskriftar- og auglýsingamarkað á sama tíma og þeir greiða hér hvorki skatta né gjöld. „Þessir miðlar lúta ekki íþyngjandi reglum um meðhöndlun efnis sem innlendir fjölmiðlar gera. Einkareknir miðlar treysta á tekjur af auglýsingasölu til að standa undir starfseminni og því væri öllum til hagsbóta að opinberir fjölmiðlar væru ekki á þeim markaði. Með breyttri umgjörð gætu fleiri miðlar blómstrað hér á landi, bætt framboð sitt og þar með staðið betur undir þeim kröfum sem til þeirra eru gerðar. Engar útsendingar verða frá eftirtöldum fjölmiðlum: Útvarp Saga ÍNN Stöð 2 Stöð 3 Bíórásin Bylgjan LéttBylgjan GullBylgjan FM Extra FMX 80’s Bylgjan FM957 X-ið Sjónvarp Símans K100 Retro Sjónvarp Hringbrautar Útvarp Hringbrautar FM89,1 Ekkert sjónvarp var á fimmtudögum á Íslandi allt til 1. október árið 1987. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan og öllum ljóst að einkareknir fjölmiðlar gegna viðamiklu hlutverki í umræðu- og afþreyingarumhverfi samfélagsins. Þannig viljum við hafa það áfram. Aðrir einkareknir fjölmiðlar eru því hvattir til að taka þátt í sameiginlegum aðgerðum þann 1. september kl. 21.00,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Meta kaupir sig frá málaferlum vegna barnavelferðar Viðskipti erlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Vara við skordýrum í chia-fræjum Neytendur Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Viðskipti innlent Atvinnuleysi jókst í júlí Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Fleiri fréttir Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar Sjá meira