Lífið

Sarah Hyland úr Modern Family hvergi nærri hætt: Negldi lag með Maroon 5

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hyland fer á kostum í myndbandinu sem sjá má við fréttina.
Hyland fer á kostum í myndbandinu sem sjá má við fréttina.
Sarah Hyland er ein af stjörnunum í gamanþáttunum Modern Family en hún fer með hlutverk  Haley Dunphy í þáttunum vinsælu.

Á YouTube fá finna skemmtilegt myndband þar sem Hyland tekur lagið Don't Wanna Know með Maroon 5 en í síðustu viku tók hún fyrir lag með The Chainsmokers.

Sjá einnig: Modern Family stjarna fer á kostum í órafmagnaðri útgáfu af laginu Closer með The Chainsmokers

Hyland er greinilega frábær söngkona og gæti hugsanlega verið að færa sig meira í áttina að tónlistinni. Þar ætti hún einnig vel heima eins og sjá má hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×