Segja Dag taka við japanska landsliðinu Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. nóvember 2016 08:00 Tekur Dagur aftur U-beygju á ferlinum og fer til Japan? vísir/getty
Dagur Sigurðsson verður ekki áfram landsliðsþjálfari Þýskalands eftir HM 2017 í Frakklandi. Hann mun stýra liðinu þar í síðasta sinn en láta svo af störfum og taka við japanska landsliðinu. Þetta kemur fram í frétt þýska blaðsins Bild. Dagur er með samning við þýska landsliðið til ársins 2020 en klásúla er í samningi hans sem gerir Valsmanninum kleift að láta af störfum eftir HM. Það ætlar hann að gera en eins og Vísir greindi frá er hann með tilboð í höndunum frá tveimur stærstu félagsliðum heims; PSG og Veszprém. Samkvæmt frétt Bild er næsti áfangastaður Dags Japan en hann vildi ekkert staðfesta þegar blaðamaður Bild náði tali af honum. Dagur sagðist enn fremur ekkert vera búinn að ákveða. Þýska blaðið heldur því fram að Dagur ætli að flytja heim til Íslands vegna fjölskylduaðstæðna en hann mun svo fljúga á milli Íslands og Japans og þjálfa japanska landsliðið. Dagur þekkir vel til í Japan en hann fór óvænt þangað árið 2000 og gerðist spilandi þjálfari Wakunaga Hiroshima. Eftir það var hann spilandi þjálfari A1 Bregenz í Austurríki og svo landsliðsþjálfari Austurríkis. Hann fór svo til Þýskalands og gerði Füchse Berlín að einu besta liði Evrópu áður en hann tók við þýska landsliðinu. Dagur er í guðatölu í Þýskalandi eftir að gera handboltalandsliðið þar að Evrópumeisturum í janúar og landa svo bronsi á Ólympíuleikunum í Ríó.
Handbolti Tengdar fréttir Dagur um nýju bókina sína: Ekki hrein ævisaga en ekki íþróttabók heldur Þetta er stór dagur fyrir íslenska handboltaþjálfarann Dag Sigurðsson því nýja bókin hans kemur út í Þýskaland í dag. 2. nóvember 2016 10:30 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira
Dagur um nýju bókina sína: Ekki hrein ævisaga en ekki íþróttabók heldur Þetta er stór dagur fyrir íslenska handboltaþjálfarann Dag Sigurðsson því nýja bókin hans kemur út í Þýskaland í dag. 2. nóvember 2016 10:30