Spánverjar hvattir til að neita rússneskum herskipum að taka eldsneyti Atli Ísleifsson skrifar 26. október 2016 08:26 Tvö spænsk herskip hafa fylgt Rússunum í gegnum sundið og er búist við þeim til hafnar innan skamms. Vísir/AFP
Stjórnvöld á Spáni eru nú harðlega gagnrýnd fyrir að leyfa rússneska flotanum sem siglir nú áleiðis til Sýrlands með flugmóðurskipið Kuznetsov Aðmírál í broddi fylkingar, að taka eldsneyti í spænsku höfninni Ceuta eftir að skipalestin fór í gegnum Gíbraltarsund snemma í morgun. Tvö spænsk herskip hafa fylgt Rússunum í gegnum sundið og er búist við þeim til hafnar innan skamms. Þó gæti svo farið að Spánverjar skipti um skoðun en talsmaður spænska varnarmálaráðuneytisins segir að leyfið sem upphaflega var gefið sé nú til endurskoðunar. Skipalestin er á leið til Sýrlands til að styðja við loftárásir Rússa, meðal annars í borginni Aleppo. Þrátt fyrir að Ceuta sé hluti af Evrópusambandinu er staða svæðisins, sem er á norðurströnd Aríku, innan NATO óljós. Frá árinu 2011 hafa sextíu rússnesk herskip lagst að höfn í Ceuta. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, hefur varað við að rússnesk herskip kunni að verða notuð í árásum á óbreytta borgara í Sýrlandi.Uppfært 10:38:Sky News greinir frá því að rússnesku herskipin hafi siglt framhjá Ceuta á leið sinni austur í Miðjarðarhafi.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira