Lífið

Transbarn leikur í næsta Modern Family þætti: „Ég er svo stolt af því að hafa leikstýrt þessu ótrúlega barni“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jackson Milliarker leikur Tom sem sjá má hér til hægri.
Jackson Milliarker leikur Tom sem sjá má hér til hægri. myndir/abc
Modern Family er einn vinsælasti þáttur heims og horfa milljónir manna á þennan grínþátt í viku hverri.

„Ég er svo stolt af því að hafa leikstýrt þessu ótrúlega barni. Modern Family hefur ráðið trans barn sem leikara,“ segir Ryan Case, leikstjóri þáttanna, en umræddur þáttur verður sýndur á sjónvarpsstöðinni ABC þann 28. september.

Einn ef aðalleikurum þáttanna Jesse Tyler Ferguson tísti einnig um málið en hann segist einnig vera gríðarlega stoltur af næsta þætti en áttunda serían af Modern Family hóf göngu sína á dögunum í Bandaríkjunum. Þættirnir eru einnig sýndir á Stöð 2.

Michell og Cam ræða hér við Lily.vísir/abc
Þeir Cam og Mitchell eiga dóttur sem heitir Lily í þáttunum. Lily býður vini sínum Tom í heimsókn og er hann leikinn af transbarninu Jackson Milliarker. Í þáttunum er Tom einnig transbarn og skapast því töluverð umræða um málið í næsta þætti.

Modern Family hefur unnið 22 Emmy-verðlaun og er vinsælasti gamanþáttur heims í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×