Grunnskólastjórar lýsa "grafalvarlegu“ ástandi 10. september 2016 06:00 Formaður skólastjórafélagsins segir meiri niðurskurð þýða skerðingu á lögbundnum skyldum skólanna
Stjórn Skólastjórafélags Íslands, SÍ, lýsir yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu fjölda grunnskóla í landinu. Fjárútlát séu óraunhæf og niðurskurður leiði til skerðingar á lögbundinni þjónustu. „Það er búið að skera niður inn að beini fyrir löngu,“ segir Kristinn Breiðfjörð, formaður Skólastjórafélagsins. Skólastjórar í Reykjavík hafa lýst mikilli óánægju með fjárveitingar til þeirra. Ekki sé hægt að bjóða upp á sómasamlegan mat fyrir nemendur í bæði leik- og grunnskólum. Meirihlutinn hefur sagt þær óánægjuraddir ósanngjarnar. „Mörg sveitarfélög hafa forgangsraðað í þágu nemenda við gerð fjárhagsáætlana en önnur hafa á síðustu árum skorið niður fjármagn til reksturs skólanna. Þetta virðist einkum eiga við nokkur af stærstu sveitarfélögunum. Má þar nefna að í höfuðborginni er að mati SÍ notað óraunhæft og úrelt reiknilíkan til að deila út fjármunum til grunnskólanna,“ segir í ályktun Skólastjórafélagsins. Kristinn segir sum stóru sveitarfélögin einfaldlega ekki hafa forgangsraðað í þágu grunnskólanna. „Margir skólar eru með neikvæðan fjárhag og kröfu um hagræðingu sem er löngu komin inn að beini,“ segir Kristinn. „Það þarf að gera skólastjórnendum það kleift að reka skólana án þess að klípa of mikið af lögbundinni þjónustu.“Halldór Halldórsson Sjálfstæðisflokkur formaður Sambands SveitarfélagaHalldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, telur meirihlutann ekki hæfan til að reka borgina. „Ég sagði við kosningar fyrir rúmum tveimur árum að það stefndi í rekstrarlegt skipbrot borgarinnar og við erum að sjá þann spádóm rætast,“ segir hann. Að sögn Halldórs margfaldast vandinn þegar forgangsröðunin er röng. „Annars vegar erum við með vondan rekstur og ofan á það ranga forgangsröðun. Það þarf að skera burt gæluverkefni meirihlutans og forgangsraða í grunnþjónustuna.“ Að mati Halldórs er Reykjavíkurborg komin að endamörkum hvað varðar niðurskurð til skólanna. „Það er gott og blessað að lækka gjöld foreldra en þá verður fjármagn að koma annars staðar frá,“ segir Halldór. „Ef það gerist ekki er betra að foreldragjöld standi í stað til að hægt sé að gefa börnum sómasamlegan mat til að mynda.“Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira