Innlent

Grunnskólastjórar lýsa "grafalvarlegu“ ástandi

Formaður skólastjórafélagsins segir meiri niðurskurð þýða skerðingu á lögbundnum skyldum skólanna
Formaður skólastjórafélagsins segir meiri niðurskurð þýða skerðingu á lögbundnum skyldum skólanna
Stjórn Skólastjórafélags Íslands, SÍ, lýsir yfir þungum áhyggjum af fjárhagsstöðu fjölda grunnskóla í landinu. Fjárútlát séu óraunhæf og niðurskurður leiði til skerðingar á lögbundinni þjónustu.

„Það er búið að skera niður inn að beini fyrir löngu,“ segir Kristinn Breiðfjörð, formaður Skólastjórafélagsins.

Skólastjórar í Reykjavík hafa lýst mikilli óánægju með fjárveitingar til þeirra. Ekki sé hægt að bjóða upp á sómasamlegan mat fyrir nemendur í bæði leik- og grunnskólum. Meirihlutinn hefur sagt þær óánægju­raddir ósanngjarnar.

„Mörg sveitarfélög hafa forgangsraðað í þágu nemenda við gerð fjárhagsáætlana en önnur hafa á síðustu árum skorið niður fjármagn til reksturs skólanna. Þetta virðist einkum eiga við nokkur af stærstu sveitarfélögunum. Má þar nefna að í höfuðborginni er að mati SÍ notað óraunhæft og úrelt reiknilíkan til að deila út fjármunum til grunnskólanna,“ segir í ályktun Skólastjórafélagsins.

Kristinn segir sum stóru sveitarfélögin einfaldlega ekki hafa forgangsraðað í þágu grunnskólanna.

„Margir skólar eru með neikvæðan fjárhag og kröfu um hagræðingu sem er löngu komin inn að beini,“ segir Kristinn. „Það þarf að gera skólastjórnendum það kleift að reka skólana án þess að klípa of mikið af lögbundinni þjónustu.“





Halldór Halldórsson Sjálfstæðisflokkur formaður Sambands Sveitarfélaga
Halldór Halldórsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, telur meirihlutann ekki hæfan til að reka borgina.

„Ég sagði við kosningar fyrir rúmum tveimur árum að það stefndi í rekstrarlegt skipbrot borgarinnar og við erum að sjá þann spádóm rætast,“ segir hann.

Að sögn Halldórs margfaldast vandinn þegar forgangsröðunin er röng. „Annars vegar erum við með vondan rekstur og ofan á það ranga forgangsröðun. Það þarf að skera burt gæluverkefni meirihlutans og forgangsraða í grunnþjónustuna.“

Að mati Halldórs er Reykjavíkurborg komin að endamörkum hvað varðar niðurskurð til skólanna. „Það er gott og blessað að lækka gjöld foreldra en þá verður fjármagn að koma annars staðar frá,“ segir Halldór. „Ef það gerist ekki er betra að foreldragjöld standi í stað til að hægt sé að gefa börnum sómasamlegan mat til að mynda.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×