Erling biður aðdáendur afsökunar og er hættur við að hætta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 15. september 2016 09:53 Erling með kakkalakka frá Madagaskar. Mynd af síðu Erlings, Heimi Smádýranna „
Úff, ég hélt að þetta yrði einfalt, gerði ekki ráð fyrir að mín yrði saknað svo mjög hér á þessum vettvangi,“ segir Erling Ólafsson, skordýrafræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands. Erling hefur haldið úti síðunni Heimur smádýranna á Facebook og kynnt fylgjendum sínum fyrir hinum ýmsu skordýrum. Meðal þeirra sem hafa verið kynnt til leiks undanfarnar vikur eru Ryðhumla, netlufiðrildi, skógburstinn og krossköngulóin. Hafa skrif hans vakið góð viðbrögð netverja en Erling birtir fallegar myndir af skordýrunum og segir frá þeim á einstakan hátt. Því krossbrá mörgum lesandanum þegar hann tilkynnti í gærmorgun að hann ætlaði að láta staðar numið „Viðbrögð við ráðgerðu brotthvarfi mínu af leikvellinum hafa tendrað hjá mér logandi samviskubit! Auk kommenta hér hafa mér borist hvatningarorð víða að um að halda síðunni gangandi áfram, til vara að loka henni ekki. Óvirkar síður þykja mér hins vegar ekki áhugavekjandi og ekki á vetur setjandi.“ Erling segist hafa lagst undir feld eins og Þorgeir Ljósvetingagoði forðum, sé nú skriðinn undan honum og tekið þá ákvörðun að hætta við að hætta og blása til seinni hálfleiks. „Síðan var stofnuð fyrir rúmum þrem árum og ég á rúm þrjú ár eftir í starfi mínu hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Starfið þar hefur lagt grunninn að þeim fróðleik sem hér er á borð borinn. Það eru ávextir Náttúrufræðistofnunar sem menn fá að njóta hér. Engu verður samt um það lofað að seinni hálfleikur verði þeim fyrri jafnlangur. Næsta padda verður væntanlega kynnt til sögu síðar í dag.“ Um 3400 manns fylgja Erling í Heimi smádýranna.
Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Erlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Erlent Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira