Finnur lætur engan bilbug á sér finna en fær kaldar kveðjur frá Jóni Gunnarssyni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. september 2016 13:05 Finnur Árnason og Jón Gunnarsson. vísir
Finnur Árnason forstjóri Haga lætur engan bilbug á sér finna í færslu á Facebook-síðu sinni sem hann setti inn í hádeginu í dag en færsla hans frá því í gær um búvörusamningana og það að þeir innihaldi ríkisstyrkt dýraníð hefur vakið hörð viðbrögð bænda, eins og Vísir greindi frá í morgun. Í færslu sinni í dag segir Finnur: „Af gefnu tilefni: Þegar búvörusamingar voru samþykktir af 19 þingmönnum á alþingi fyrr í vikunni, var breytingartillaga Bjartrar framtíðar um að styrkir féllu niður til þeirra sem stunduðu dýraníð felld. Hvað segir það um afstöðu þingmanna og þeirra sem stóðu að búrvörusamningnum til dýraníðs? Ég held að flestir bændur og almenningur séu mér sammála um að þessa breytingartillögu átti ekki að fella í þinginu.“ Með fylgir svo linkur á frétt mbl.is um niðurstöðu atkvæðagreiðslu um búvörusamningana en þar kemur einmitt fram að breytingatillaga minnihluta atvinnuveganefndar um að styrkir féllu niður til þeirra bænda sem verði uppvísir að dýraníð en inn í samningunum er þó ákvæði varðandi heimildir Matvælastofnunar til að svipta bændur styrkjum stundi þeir dýraníð. Þetta dregur Jón Gunnarsson formaður atvinnuveganefndar einmitt fram í athugasemd við færslu Finns og vandar forstjóranum í raun ekki kveðjurnar: „Finnur, það er í góðu lagi að þú hafir eitthvað við afgreiðslu búvörulaga að athuga en ég fer fram á það við þig að þú hallir ekki réttu máli. Þessi skrif þín um dýraníð eru á mjög lágu plani og þér ekki sæmandi. Um viðbrögð við slæmri meðferð á skepnum er fjallað um í lögum um dýravernd og samkvæmt þeim lögum hefur Matvælastofnun mjög víðtækar heimildir til að grípa til við slíkar aðstæður. Við afgreiðslu búvörulaga nú bættum við inn heimild til stofnunarinnar til að svipta bændur beingreiðslum sem enn eitt úrræðið ef um slæma meðferð á dýrum er að ræða. Þetta er því samspil þessara tveggja lagabálka og ákvæðið var unnið sameiginlega af lögfræðingum ráðuneytisins og Alþingis. Það er oft þannig að einhverjir reyna síðan að slá pólitískar keilur með breytingartillögum eins og gerðist í þessu tilfelli. Það er margt annað sem ég hef að athuga við málflutning þinn sem allur miðast við hagsmuni þess fyrirtækis sem þú rekur og vill geta stundað óheftan innflutning á búvörum. Þannig er það ekki hjá neinni þjóð sem við berum okkur saman við. Á þessu kjörtímabili hafa verið stigin stærri skref í framþróun á skipulagi þessara mála en nokkur sinni fyrr. Þú heldur því stöðugt fram að samningurinn sé bundinn til 10 ára, það er alrangt eins og ég held að þú vitir. Það er mikilvægt að um þessi mál eigi sér stað opin heiðarleg umræða en ekki innihaldslausir sleggjudómar,“ segir í athugasemd Jóns.Uppfært: Í Facebook-færslu Finns kemur fram að breytingatillaga um að fella niður styrki til þeirra sem stunda dýraníð hafi komið frá Bjartri framtíð. Hið rétta er að breytingatillagan var lögð fram minnihluta atvinnuveganefndar sem Björt framtíð er vissulega hluti af.
Tengdar fréttir Forstjóri Haga hvetur til þjóðaratkvæðagreiðslu Finnur Árnason telur skuldbindingu vegna búvörusamninga slíka að vert sé að þjóðin fái að segja sína skoðun. 14. september 2016 16:57 Bændur brjálaðir út í Finn Bændasamtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna orða forstjóra Haga. 15. september 2016 10:18 Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Innlent Fleiri fréttir „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Sjá meira
Forstjóri Haga hvetur til þjóðaratkvæðagreiðslu Finnur Árnason telur skuldbindingu vegna búvörusamninga slíka að vert sé að þjóðin fái að segja sína skoðun. 14. september 2016 16:57
Bændur brjálaðir út í Finn Bændasamtökin hafa sent frá sér yfirlýsingu vegna orða forstjóra Haga. 15. september 2016 10:18