Stærsta farþegaskipið um norðvesturleiðina Kristján Már Unnarsson skrifar 17. september 2016 15:00 Skemmtiferðaskipið Crystal Serenity er 250 metra langt og 69 þúsund tonn að stærð. Mynd/Crystal Cruises.
Skemmtiferðaskipið Crystal Serenity kom til New York-hafnar í gær eftir 32 daga siglingu frá Alaska um norðvesturleiðina svokölluðu, milli Kyrrahafs og Atlantshafs. Siglingin markar þáttaskil í sjóferðasögu mannkyns því aldrei fyrr hefur svo stórt farþegaskip siglt þessa leið um heimsskautssvæði norðurslóða. Skipið lagði upp frá bænum Seward, sunnan Anchorage, í Alaska þann 16. ágúst með um 900 farþega um borð og 600 manna áhöfn. Siglingaleiðin lá um Beringssund, síðan austur með norðurströndum Alaska og Kanada og suður meðfram vesturströnd Grænlands. Á Grænlandi kom skipið við í þremur höfnum, Ilulissat við Diskó-flóa, Sisimiut og höfuðstaðnum Nuuk, áður en lagt var í lokaáfangann suður Labradorhaf og til New York.Siglingaleiðin eins og hún er sýnd á heimasíðu skipafélagsins Crystal Cruises.Undirbúningur ferðarinnar tók þrjú ár. Skipstjórinn var norskur, Birger Vorland, með 38 ára siglingareynslu, þar á meðal af norðurslóðasiglingum við Svalbarða. Um borð var margskyns auka öryggisbúnaður, eins og ísratsjá. Þá voru tveir kanadískir hafnsögumenn með í för með mikla þekkingu á siglingum um hafís. Crystal Serenity þykir eitt af íburðarmeiri skemmtiferðaskipum heimshafanna; með sundlaug, heitum pottum, spilavíti, kvikmyndasal og sex veitingastöðum. Það er 69 þúsund tonn að stærð og 250 metra langt og með þrettán þilför. Ódýrasta fargjald norðvesturleiðina kostaði 2,5 milljónir króna og það dýrasta tæpar 14 milljónir króna. Siglingin þykir hafa heppnast það vel að skipafélagið er þegar byrjað að selja farmiða í næstu ferð sömu leið sumarið 2017. Norðmaðurinn Roald Amundsen fór fyrir fyrsta leiðangrinum sem heppnaðist að sigla norðvesturleiðina á árunum 1903 til 1906. Hún þótti illfær allt til ársins 2009 en þá var hlýnun sjávar búin að bræða nægilegar glufur í hafísinn. Crystal Serenity er þó ekki stærsta skipið til að sigla um þessar slóðir því árið 2013 sigldi 73.500 tonna danskt flutningaskip, Nordic Orion, þessa sömu leið.
Tengdar fréttir Íslendingar í lykilstöðum við stækkun hafnarinnar í Nuuk Vonast er til að tvöföldun hafnarinnar í Nuuk, höfuðstað Grænlands, verði lyftistöng fyrir atvinnulíf Grænlendinga. 13. mars 2016 20:15 Kínverskt skipafélag undirbýr áætlunarsiglingar um Íshafið Stærsta skipafélag heims, kínverska ríkisskipafélagið COSCO, kannar nú möguleika á að hefja fastar áætlunarsiglingar norðausturleiðina um Íshafið. 8. nóvember 2015 21:58 Skipaferðir um Norður-Íshafið margfaldast Meira en 200 skip hafa fengið leyfi til að sigla norður fyrir Rússland í ár. Siglingum þessa leið hefur fjölgað hratt síðustu árin eftir því sem dregið hefur úr hafís. 25. júlí 2013 07:00 Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00 Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00 Leiðbeiningar birtar fyrir íshafssiglingar Bandaríska siglingastofnunin hefur gefið út alþjóðlegar leiðbeiningar um siglingaleiðina um Íshafið, svokallaða norðausturleið. 2. febrúar 2014 11:00 Mest lesið Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“ Viðskipti erlent Níu manns sagt upp hjá Veitum Atvinnulíf Fleiri fréttir Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Sjá meira
Íslendingar í lykilstöðum við stækkun hafnarinnar í Nuuk Vonast er til að tvöföldun hafnarinnar í Nuuk, höfuðstað Grænlands, verði lyftistöng fyrir atvinnulíf Grænlendinga. 13. mars 2016 20:15
Kínverskt skipafélag undirbýr áætlunarsiglingar um Íshafið Stærsta skipafélag heims, kínverska ríkisskipafélagið COSCO, kannar nú möguleika á að hefja fastar áætlunarsiglingar norðausturleiðina um Íshafið. 8. nóvember 2015 21:58
Skipaferðir um Norður-Íshafið margfaldast Meira en 200 skip hafa fengið leyfi til að sigla norður fyrir Rússland í ár. Siglingum þessa leið hefur fjölgað hratt síðustu árin eftir því sem dregið hefur úr hafís. 25. júlí 2013 07:00
Stór áfangi að þjónustuhöfn Norðurslóða við Finnafjörð Oddviti Langanesbyggðar hefur fulla trúa á því að risahöfn við Finnafjörð verði að veruleika eftir að eitt stærsta hafnafyrirtæki Evrópu, Bremenports, ritaði undir samstarfssamning um að kosta mörghundruð milljóna króna undirbúningsvinnu. 22. maí 2014 22:00
Verkþekking Íslendinga byggir upp innviði Grænlands Virkjunarframkvæmdir Ístaks, sem nú standa yfir við Diskóflóa á Grænlandi, skila 6-8 milljarða króna tekjum til íslenskra fyrirtækja. Íslensk verkþekking byggir um leið upp innviði Grænlands og segir orkumálastjóri landsins smíði vatnsaflsstöðva hafa gríðarlega þýðingu. Þetta kom fram í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í kvöld, þeim síðari um störf Íslendinga á Grænlandi, en sá fyrri var í gærkvöldi. Virkjunin við Ilulissat telst kannski ekki stór á íslenskan mælikvarða, hún verður 22,5 megavött eða um fjórðungur af stærð Búðarhálsvirkjunar, sem nú er í smíðum. 11. september 2012 23:00
Leiðbeiningar birtar fyrir íshafssiglingar Bandaríska siglingastofnunin hefur gefið út alþjóðlegar leiðbeiningar um siglingaleiðina um Íshafið, svokallaða norðausturleið. 2. febrúar 2014 11:00