Forsætisráðherra um kaupauka: „Taktlaust og jafnvel siðlaust“ Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 31. ágúst 2016 18:50 Ráðherrann boðar aðgerðir gegn félögunum og segir meðal annars koma til greina að skattleggja tekjurnar sérstaklega. Vísir/Stefán
Forsætisráðherra segir kaupaukagreiðslur félaga sem halda utan um eignir föllnu fjármálafyrirtækjanna vera mjög taktlausar og jafnvel siðlausar. Hann boðar aðgerðir gegn félögunum og segir meðal annars koma til greina að skattleggja tekjurnar sérstaklega. 20 lykilstarfsmenn eignarhaldsfélagsins Kaupþings munu fá kaupauka sem geta numið allt að einum og hálfum milljarði króna samanlagt. Þetta var staðfest á aðalfundi félagsins í gærkvöldi. Kaupaukarnir eru háðir því að þessum starfsmönnum takist að hámarka virði óseldra eigna félagsins, en það á meðal annars 87% hlut í Arion banka. Sambærileg kaupaukakerfi hafa einnig verið samþykkt hjá gamla Landsbankanum og Glitni.Glufur í skattkerfinu Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, óskaði í dag eftir fundi í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis vegna málsins en þingmenn allra flokka hafa gagnrýnt þessar greiðslur. Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra, tekur undir þá gagnrýni. „Mér finnst þetta í raun og veru mjög taktlaust, og jafnvel siðlaust,“ segir Sigurður Ingi. Hann segir að þó Íslendingum þyki almennt allt í lagi að sumum vegni vel þá þolum við mjög illa óréttláta skiptingu. Aðspurður hvort stjórnvöld muni á einhvern hátt bregðast við þessu bendir hann á að þetta sé fé í eigu erlendra aðila og greiðslurnar verði skattlagðar sem launatekjur. Þessar greiðslur bendi þó til þess að glufur séu í skattkerfinu og vísar hann einnig til dæma þegar einstaklingar fá miklar launahækkanir í gegnum kaupréttarsamninga. „Ég ræddi það á þingflokksfundi Framsóknarflokksins í dag hvort að við ættum að setja á laggirnar einhvern starfshóp til að skoða þessar glufur sem að eru í kerfinu. Af því að, sérstaklega í þessum tilvikum, að þá kannski finnst okkur ekkert óeðlilegt að stærri hluti af þessum tekjum renni til samfélagsins en bara til örfárra einstaklinga,“ segir Sigurður.Til skoðunar að skattleggja þessar tekjur sérstaklega Skoða þurfi hvort hægt sé að fella þessi fyrirtæki undir ákvæði laga um fjármálafyrirtæki, sem takmarkar fjárhæðir kaupauka við 25% af árslaunum starfsmanns. Einnig hvort hægt væri að skattleggja þessar tekjur sérstaklega. „Það má alveg velta því fyrir sér hvort það sé rétta leiðin að finna einhverja slíka skattlagningu. Ég veit að Bretar fóru sambærilega leið og það var meðal annars vegna þess að bankakerfið þar, fjármálakerfið, fór ekki að lögum, fann glufur. Og mér finnst það koma til álita að skoða það en við þurfum að skoða þetta heildstætt og grípa til viðeigandi ráðstafana en kannski ekki gera eitthvað í bráðræði,“ segir Sigurður Ingi.
Tengdar fréttir Glitnir greiðir starfsmönnum sínum einnig bónusa Eignarhaldsfélag allra föllnu bankanna greiða starfsmönnum sínum bónusa en á hluthafafundi Glitnis í mars á þessu ári var tillaga um bónusgreiðslur til starfsmanna samþykkt. 31. ágúst 2016 08:52 Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32 Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana Samþykktar hafa verið milljarða greiðslur til stjórnenda Kaupþings og gamla Landsbankans. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir engin sérákvæði um slíkar greiðslur í lögum en hægt væri að leggja sérstakan skatt á þær. 31. ágúst 2016 06:00 Bónusgreiðslurnar samþykktar á fundi stjórnar Kaupþings Fulltrúi stjórnar eignasafns Seðlabankans greiddi atkvæði gegn tillögunni. 30. ágúst 2016 20:31 Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12 Mest lesið Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Innlent Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Vance biðlar til ungra reiðra manna Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira
Glitnir greiðir starfsmönnum sínum einnig bónusa Eignarhaldsfélag allra föllnu bankanna greiða starfsmönnum sínum bónusa en á hluthafafundi Glitnis í mars á þessu ári var tillaga um bónusgreiðslur til starfsmanna samþykkt. 31. ágúst 2016 08:52
Vilja leggja himinháa skatta á bónusgreiðslurnar: „Þetta verður að stöðva með öllum ráðum“ Bónusgreiðslur til starfsmanna Kaupþings og gamla Landsbankans voru ræddar á Alþingi í dag. 30. ágúst 2016 14:32
Indriði segir hægt að setja sérstakan skatt á ofurbónusana Samþykktar hafa verið milljarða greiðslur til stjórnenda Kaupþings og gamla Landsbankans. Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir engin sérákvæði um slíkar greiðslur í lögum en hægt væri að leggja sérstakan skatt á þær. 31. ágúst 2016 06:00
Bónusgreiðslurnar samþykktar á fundi stjórnar Kaupþings Fulltrúi stjórnar eignasafns Seðlabankans greiddi atkvæði gegn tillögunni. 30. ágúst 2016 20:31
Gætu fengið hundruð milljóna í bónus Markmið bónuskerfisins er að búa til hvata fyrir umrædda stjórnendur til að hámarka virði óseldra eigna félagsins. 30. ágúst 2016 10:12