Grunaður um að nauðga barnsmóður sinni: Blóðslettur víða um íbúðina og áverkar um allan líkamann Nadine Guðrún Yaghi og Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifa 10. ágúst 2016 08:30 Maðurinn er grunaður um að hafa nauðgað fyrrum sambýliskonu sinni og barnsmóður og beitt hana ofbeldi á heimili hennar í júlí. vísir/getty
Hæstiréttur staðfesti þann 1. ágúst síðastliðinn úrskurð Héraðsdóms Reykjaness um að íslenskur karlmaður sem grunaður er um nauðgu verði í gæsluvarðhaldi til 26. ágúst. Maðurinn er grunaður um að hafa í lok júlímánaðar nauðgað fyrrum sambýliskonu og barnsmóður sinni og beitt hana hrottalegu ofbeldi í um tvo klukkutíma á heimili hennar en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá 24. júlí. Fréttablaðið greindi fyrst frá málinu þann 30. júlí síðastliðinn. Í gæsluvarðhaldsúrskúrði héraðsdóms kemur fram að maðurinn, sem fæddur er árið 1991, hafi verið á skilorði vegna dóms sem hann hlaut vegna tveggja líkamsárása gegn barnsmóður sinni þegar meint nauðgun og líkamsárás átti sér stað í júlí.Mætti óboðinn til konunnar Samkvæmt greinargerð lögreglu var maðurinn handtekinn heima hjá konunni skömmu eftir hina meintu árás. Konan var hins vegar flutt á neyðarmóttöku Landspítalans en á vettvangi og við skýrslutökur hjá lögreglu lýsti konan því að maðurinn hafi um nóttina komið óboðinn heim til hennar ásamt öðrum mann sem konan þekkti ekki. Fyrrverandi sambýlismaður hennar hafi viljað að hún svæfi hjá þeim báðum en það vildi konan ekki. Sagði hún þeim að fara sem þeir og gerðu. Stuttu síðar kom barnsfaðir hennar aftur og beðið um gistingu. Sagði konan að hann mætti gista á sófanum, hann fór fram en kom svo inn í svefnherbergið, réðst á konuna og nauðgaði henni. Er málsatvikum lýst sem svo í dómi héraðsdóms: „Taldi brotaþoli atlögu kærða hafa staðið í yfir tvo klukkutíma en á þessum tíma hafi kærði ítrekað nauðgað brotþola, barið hana og hótað henni. Hafi hann þannig haft við hana samfarir um munn, í leggöng og í endaþarm. Hafi brotþoli lýst því að kærði hafi hótað henni með hníf og meðal annars borið hníf að hálsi hennar á meðan hann hafi haft samfarir við hana. Hafi hún hlotið skurð á höku eftir hnífinn. Þá hafi brotþoli sagt að sér væri svo heitt en kærði hafi meinað henni að opna glugga en leyft henni að fara í sturtu. Hann hafi svo nauðgað henni í sturtunni og skellt henni á vegg þar. Brotþoli hafi jafnframt lýst því að hún hefði á einhverjum tímapunkti í atburðarrásinni reynt að komast að útidyrahurð til að kalla á hjálp en kærði hafi náð henni, haldið henni niðri og tekið hana kverktaki þar til hún hafi misst meðvitund. Einnig hafi komið fram hjá brotþola að kærði hafi ítrekað hótað henni lífláti og jafnvel talað um að taka eigið líf um leið. Kveðst brotþoli hafa óttast mjög um líf sitt og talið að kærði ætlaði sér virkilega að drepa hana. Kvaðst brotþoli hafa reynt að ná til kærða með því að ræða við hann um börn þeirra en hún hafi ekkert náð til hans, hann hafi virst brjálaður.“Blóðugur hnífur í vaski Þá segir jafnframt í greinargerð lögreglu að samkvæmt skýrslu um réttarlæknisfræðilega skoðun hafi áverkar konunnar, sem voru um allan líkama hennar, hafi verið í samræmi við frásögn hennar af atburðum. Þá hafi lögreglan séð blóðslettur víða um íbúð konunnar, meðal annars í forstofu, á gangi við barnaherbergi, stofu og svefnherbergi. „Blóð hafi einnig fundist við sófa en kærði hafi setið þar þegar lögregla kom að. Þá hafi fundist hnífur með blóði í vaski baðherbergis. Muni hnífurinn vera nokkuð beittur. Inni á baðherbergi hafi allt verið á floti og augljóst að sturtan hafði verið í gangi. Í sturtuklefanum hafi fundist hár á vegg, síð hár. Var það mat rannsóknarlögreglumanns á vettvangi að þessi hár væru nýkomin á vegginn því þau hefðu skolast niður næst þegar skrúfað væri frá vatninu. Á gólfi í svefnherbergi hafi fundist töluvert af hári,“ segir í dómi héraðsdóms. Maðurinn neitar sök í málinu og er lýsing hans á atburðum afar ólík lýsingum konunnar. Að mati lögreglu stangast framburður hans verulega á við önnur gögn málsins. Þá er framburður konunnar hjá lögreglu í öllum meginatriðum í samræmi við það sem haft er eftir henni í skýrslu læknis á neyðarmóttöku Landspítala. Maðurinn sé því undir sterkum grun um brot sem varði allt að 10 ára fangelsi auk þess sem hann er undir rökstuddum grun um að hafa rofið skilorð. Var því fallist á kröfu lögreglunnar um að maðurinn sæti gæsluvarðhaldi í fjórar vikur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni er rannsókn málsins á lokametrunum.
Tengdar fréttir Grunur um hrottalegt brot Íslenskur karlmaður er grunaður um að hafa nauðgað konu og beitt hana hrottalegu ofbeldi á heimili hennar á föstudag fyrir rúmri viku. 30. júlí 2016 07:00 Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Innlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent 27 daga frostlausum kafla lokið Veður Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Erlent Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Innlent Fleiri fréttir „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Stytta opnunartíma Seltjarnarneslaugar: „Er þetta það sem við viljum spara í?“ Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Komu ferðamönnum í sjálfsheldu á Búlandstindi til aðstoðar Fylla í skörð reynslubolta Þurfti rannsóknarvinnu til að finna upplýsingar um bílastæðarukkun „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Bráðabirgðaheimild veitt fyrir Hvammsvirkjun Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Bílastæðamál, POTS, ókyrrð og íslenski hesturinn Engin byssa reyndist vera í bílnum Strætisvagnar rákust saman við Borgartún Hinn látni bandarískur ferðamaður á sextugsaldri Svara til saka eftir tvær vikur Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Virkjanir í Skagafirði úr vernd í bið en Urriðafoss í nýtingu Meira að segja happ þegar frystihúsið brann Nýtt skilti komið upp og rauða ljósið mun loga oftar Tíu metra djúp hola í ísnum á vinsælli gönguleið „Eins og það væri verið að segja mér að ég ætti tvo mánuði eftir ólifað“ Tveir á sjúkrahús eftir rafskútuslys Missir mikilvægrar meðferðar, óánægja í Ísrael og sundkappinn sem tefst Leiðtogar Norðurlanda og Eystrasaltsins: Engin friður án aðkomu Úkraínu“ Einn handtekinn vegna gruns um íkveikju Ný Miðgarðakirkja vígð í Grímsey Dvalarleyfiskerfið „handónýtt“: Erlent verkafólk leiti í vændi til að ná endum saman Átta utanríkisráðherrar fordæma hernámið á Gasa Mikill eldur í gömlu timburhúsi á Skaganum Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll Sjá meira
Grunur um hrottalegt brot Íslenskur karlmaður er grunaður um að hafa nauðgað konu og beitt hana hrottalegu ofbeldi á heimili hennar á föstudag fyrir rúmri viku. 30. júlí 2016 07:00