Viðskipti innlent

Ferðamennirnir í stað þorsksins í frystihúsið

Kristján Már Unnarsson skrifar
Það er liðinn um það bil aldarfjórðungur frá því bændur hófu að breyta fjósum í gistihús til sveita. Nú víkur sjávarútvegurinn einnig fyrir ferðaþjónustu því að á Breiðdalsvík er búið að taka frystihúsið undir ferðamenn. 

Það er tímanna tákn í sjávarplássi, þar sem frystihúsið var forðum langstærsta atvinnufyrirtækið, þar hefur hótelið núna tekið við sem burðarás byggðarlagsins. Hótel Bláfell er orðinn stærsti vinnustaður Breiðdalsvíkur. 

„Ég var með 44 starfsmenn sem ég borgaði laun um síðustu mánaðamót. Ég er með átta á ársgrundvelli. En yfir fjóra mánuði ársins er ég með 30-40 manns,“ segir Friðrik Árnason, eigandi og hótelstjóri Hótel Bláfells.

Hótel Bláfell var fjölmennasti vinnustaðurinn á Breiðdalsvík í sumar.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Friðrik keypti hótelið fyrir átta árum en þá voru þar rúmlega tuttugu herbergi. Hann réðst fljótlega í stækkun með því að kaupa gömlu símstöðina við hliðina og tvöfaldaði herbergjafjöldann upp í rúmlega fjörutíu. Hann keypti einnig gamla kaupfélagshúsið og innréttaði þar verslun og veitingastað. 

Gegnt hótelinu stóð gamla hraðfrystihús Breiðdælinga ónotað en hótelið vantaði stóran veitingasal. Og þar sem fiskurinn rann forðum á færiböndum um vélasali, þar er nú búið að innrétta 400 manna veitinga- og ráðstefnusal. 

„Það er svo mikið af fólki sem kemur hér í gegn bara í mat. Það er mikið af fólki hér í hádeginu og um miðjan dag á sumrin, sérstaklega mikið af rútum sem stoppa hér hjá okkur í hádeginu. Okkur veitti bara ekkert af svona sal.“

Hér var áður Hraðfrystihús Breiðdælinga. Nú er hér 400 manna veitinga- og ráðstefnusalur.Stöð 2/Friðrik Þór Halldórsson.
Friðrik segir að þegar Hraðfrystihús Breiðdælinga stóð með mestum blóma hafi starfað þar allt að 80 manns við að afla gjaldeyris í þjóðarbúið. 

„Nú er það hótelið og ferðaþjónustan. Þetta er mikil breyting. Það eru komnir ferðamenn í frystihúsið! Þetta er kúvending,“ segir Friðrik hótelstjóri.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×