Íslensku strákarnir í undanúrslitin á EM eftir stórsigur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. júlí 2016 19:30 Jón Axel Guðmundsson. Mynd/FIBAEurope
Íslenska tuttugu ára landsliðið í körfubolta er komið í undanúrslit í B-deild Evrópukeppni 20 ára liða eftir að hafa farið á kostum á móti Georgíu í átta liða úrslitunum í kvöld. Íslensku strákarnir voru frábærir og unnu 40 stiga stórsigur á Georgíumönnum, 94-54, en leikmenn Georgíu áttu engin svör á móti léttleikandi íslensku liðið þar sem margir leikmenn voru að spila vel. Íslenska liðið tryggði sér þar með leik á móti heimamönnum í Grikklandi í undanúrslitum keppninnar annað kvöld. Gríska liðið hefur unnið alla sex leiki sína á mótinu til þessa og þykir líklegt til að vinna gullið. Það var magnað að sjá til íslensku strákanna en þeir voru nánast allir í stuði. Alls skoraði íslenska liðið þrettán þriggja stiga körfur í leiknum og sjö leikmenn liðsins settu niður þrist. Kristinn Pálsson og Hjálmar Stefánsson voru stigahæstir með 15 stig hvor, Jón Axel Guðmundsson var með 13 stig og þeir Pétur Rúnar Birgisson og Kári Jónsson skoruðu báðir 12 stig. Kári var einnig með 6 fráköst og 6 stoðsendingar. Breki Gylfason (10 stig) var síðan sjötti leikmaðurinn sem skoraði tíu stig eða meira. Finnur Freyr Stefánsson var greinilega með íslensku strákanna rétt stillta fyrir leikinn í kvöld því þeir gerðu nánast út um leikinn með því að komast í 12-3 og 19-5 í upphafi leiks. Íslenska liðið gaf tóninn þarna strax í byrjun og vann á endanum fyrsta leikhlutann 29-5. Ísland var síðan 21 stigi yfir í hálfleik, 45-24, og það munaði síðan orðið 29 stigum eftir þriðja leikhlutann en Ísland var þá 65-36 yfir. Íslenska liðið bætti við forystuna í fjórða leikhlutanum og tryggði sér stórglæsilegan sigur. Liðið hefur nú unnið fjóra leiki í röð í keppninni eftir að hafa tapað fyrsta leiknum.
Körfubolti Íslenski körfuboltinn Mest lesið Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn Ver val á meintum kynferðisbrotamanni Fótbolti Fékk ekki að ferðast með landsliðinu til Bandaríkjanna Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Bodö/Glimt græddi yfir sex milljarða á Evrópuævintýrinu Fótbolti Svíar tala um valdaskipti í skandinavískum íþróttum Fótbolti Fleiri fréttir Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Sjá meira