Fótbolti

Ronaldo borinn grátandi af velli í París

Ronaldo grætur enda að missa af úrslitaleik EM.
Ronaldo grætur enda að missa af úrslitaleik EM. vísir/getty
Cristiano Ronaldo var borinn af velli í úrslitaleik EM í knattspyrnu sem nú fer fram í París í Frakklandi, en þar mætast Portúgal og gestgjafarnir í Frakklandi.

Á 25. mínútu þurfti Ronaldo að biðja um skiptingu vegna meiðsla, en Dimitri Payet hafði brotið á honum stuttu áður.

Sá portúgalski reyndi allt hvað han gat til að halda áfram, en eftir að hann kom inná í annað skiptið eftir að hafa fengið að aðhlynningu bað hann um skiptingu.

Ricardo Quaresma kom inn í hans stað, en hægt er að fylgast með beinni lýsingu frá leiknum hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×