Einn af þrennustrákunum Dominos-deildarinnar í Stjörnuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. maí 2016 09:45 Eysteinn Bjarni Ævarsson. Vísir/Anton
Stjarnan hefur fengið góðan liðstyrk fyrir átökin í Domino´s deild karla í körfubolta á næsta tímabili en Eysteinn Bjarni Ævarsson hefur ákveðið að spila í Garðabænum.Karfan.is segir frá félagsskiptum Eysteins í dag en hann undirritaði samninginn í gær. Eysteinn hyggur á nám í höfuðborginni næsta vetur og var því að leita sér að liði á höfuðborgarsvæðinu. Eysteinn Bjarni Ævarsson er nýorðinn 21 árs gamall en hann spilaði stórt hlutverk með Hetti í Domino´s deildinni á nýloknu tímabili þar sem hann var með 10,0 stig, 5,7 fráköst og 3,1 stoðsendingu að meðaltali í leik. Eysteinn Bjarni lék meira af sér kveða eftir áramót en í síðustu ellefu umferðunum var hann með 12,9 stig, 6,7 fráköst og 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Eysteinn Bjarni endaði síðan á því að ná glæsilegri þrennu í síðasta heimaleiknum en hann var þá með 29 stig, 10 fráköst, 10 stoðsendingar og 3 stolna bolta á móti Þór úr Þorlákshöfn. Eysteinn er stór og kraftmikill bakvörður sem getur spilað fleiri en eina stöðu. Mikilvægi hans fyrir Hattarliðið sést líka á því að hann var með flotta tölfræði í þremur sigurleikjum liðsins í deildinni í vetur (12,3 stig, 6,0 fráköst og 5,3 stoðsendingar í leik). Stjarnan verður þriðja félagið hans í úrvalsdeildinni því auk þess að spila með Hetti í vetur þá lék hann eitt tímabil með Keflavík 2014-15.
Dominos-deild karla Mest lesið Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Sjá meira