Oddný nýtur mests fylgis meðal almennings sem formaður Samfylkingarinnar Birgir Olgeirsson skrifar 21. apríl 2016 12:11 Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Vísir/Vilhelm
Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, nýtur mests fylgis í stöðu formanns Samfylkingarinnar samkvæmt könnun Gallups. Oddný mælist með 32,4 prósenta fylgi en þar á eftir kemur Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingarinnar með 29,9 prósent. Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, mælist með 20 prósenta fylgi, Magnús Orri Schram með 12,3 prósenta fylgi og Guðmundur Ari Sigurjónsson, bæjarfulltrúi af Seltjarnarnesi, með 5,5 prósent. Í samtali við Vísi segir Oddný þessa niðurstöðu vera ánægjulega en tók fram að þetta sé einungis léttur samkvæmisleikur. Munurinn sé lítill á henni og Helga Hjörvari og hafi könnunin því takmarkað spádómsgildi. Könnunina framkvæmdi Gallup fyrir stuðningsmenn Helga Hjörvars, þingmanns Samfylkingarinnar, dagana 7. – 13. apríl síðastliðinn en spurt var hvert þeirra sem lýst hafa yfir framboði, auk sitjandi formanns, væri best fallið til þess að verða næsti formaður flokksins. Lýsir könnunin aðeins afstöðu almennings til spurningarinnar en ekki flokksmanna í Samfylkingunni en þeir einir hafa atkvæðisrétt í formannskjörinu. Um er að ræða netkönnun þar sem 53,5% svarenda tóku afstöðu til frambjóðenda en 1435 manns úr viðhorfahópi Gallup voru í úrtaki og bárust svör frá 848 þeirra. Svarhlutfallið var því 59,1%. Landsfundur Samfylkingarinnar er fyrirhugaður 4. júní næstkomandi. Í tengslum við fundinn fer fram allsherjaratkvæðagreiðsla um embætti formanns flokksins.
Mest lesið Hrakfarir á heimleið frá Tene: „Ferðumst innanlands á næstunni og engar jólagjafir í ár“ Innlent Vilja nýja leið fyrir strætó í Fossvogi í gegnum tvo botnlanga Innlent Loka sendiráðinu örfáum dögum eftir veitingu Nóbelsverðlauna Erlent Enn verið að slökkva í síðustu glæðunum Innlent Aðeins fjórum líkum af 28 skilað og óvíst um afvopnun Erlent Flugumferðarstjórar boða vinnustöðvun Innlent Heimferðin frá Tenerife algjör martröð Innlent Persónuleg símanúmer þekktra einstaklinga birt á vefnum Erlent Slagorð í anda erlendra flokka sem setja þjóðernishyggju á oddinn Innlent „Enn einn hundur dáinn“ og kallað eftir úrbótum hjá borginni Innlent Fleiri fréttir Átján ára veitti manni „langan og djúpan gapandi skurð“ Oddviti Múlaþings vill verða ritari Framsóknarflokksins Kókaín, MDMA og mikið magn ketamíns í Norrænu Flugumferðarstjórar boða vinnustöðvun Meirihluti hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju Aldrei færri á móti olíuleit vegna náttúruverndarsjónarmiða „Aðstoðin verður að fá greiða leið inn á Gasa“ Eldur í nýbyggingu í Gufunesi Enn verið að slökkva í síðustu glæðunum Vilja nýja leið fyrir strætó í Fossvogi í gegnum tvo botnlanga Slagorð í anda erlendra flokka sem setja þjóðernishyggju á oddinn Hrakfarir á heimleið frá Tene: „Ferðumst innanlands á næstunni og engar jólagjafir í ár“ Eldur logar á Siglufirði Bréfin björguðu lífi hans í rússneska fangelsinu „Enn einn hundur dáinn“ og kallað eftir úrbótum hjá borginni Bókaþjófur herjar á íslenska rithöfunda á ný Martraðarkennd reynsla í fangelsi hjóm í samanburði við þjáningu Palestínumanna Magga Stína segir sögu sína í kvöldfréttum Fannst sofandi í gámi og var vísað í burtu Annar starfsmaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins hættir Myndu ekki vilja stýra sveitarfélagi sem þvingað væri til sameiningar Blaðamaður DV ekki brotlegur í umfjöllun um hæfi lögreglustjórans í Eyjum Heimferðin frá Tenerife algjör martröð Enn vesen í Vesturbæjarlaug Búið að birta umhverfismatsskýrslu fyrir Sundabraut Fámennir hópar sagðir geta skuldbundið sveitarfélög með frumvarpi ráðherra „Ég er ekki sammála þessari umræðu og þessari nálgun“ Styttist í stóra ákvörðun vegna Sundabrautar Slapp með skrekkinn við myndatöku í Reynisfjöru Gíslunum sleppt á Gasa og hin umdeilda Sundabraut Sjá meira