Að meðaltali 30 morð á dag Birta Björnsdóttir skrifar 23. apríl 2016 20:00
Lögreglan í Ohio leitar nú þeirrra sem taldir eru bera ábyrgð á dauða átta einstaklinga sem fundust látnir á heimilum sínum í bænum Piketon suður af Columbus í gær. Ekki er vitað hvort árásarmaðurinn var einn eða hvort þeir voru fleiri. Hin látnu tengjast öll fjölskylduböndum. „Við getum staðfest að við höfum fundið lík af átta manneskjum. Sjö þeirra eru fullorðnir einstaklingar en einn sextán ára unglingur," sagði Charles Reader, lögreglumaður í Pike-sýslu í Ohio við blaðamenn fyrr í dag. „Öll fórnarlömbin voru tekin af lífi. Þau voru öll skotin í höfuðið," sagði Mike Dewine, saksóknari í Ohio-sýslu. Meðal hinna látnu var móðir fjögurra daga gamals barns, sem sakaði ekki. Lögreglustjórinn í Piketon sagðist ekki telja að hætta steðjaði að almenningi, málið væri bundið við þessa tilteknu fjölskyldu. Þá fann lögreglan í Georgíu í morgun lík manns sem talinn er bera ábyrgð á dauða fimm einstaklinga sem skotnir voru til bana í gær. Árásirnar voru tvær talsins í bænum Appling, austan við Atlanta. Ekki hafa enn verið borin kennsl á hin látnu en talið að morðin tengist fjölskylduerjum. Það sem af er ári hafa 3,976 manns verið skotnir til bana í Bandaríkjunum, þar af hefur 161 barn undir 12 ára aldri slasast eða látið lífið í skotárásum. Skotvopn koma við sögu í að meðaltali 92 dauðsföllum í Bandaríkjunum á dag, þar af eru að meðaltali 30 morð og 58 sjálfsvíg á degi hverjum.
Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira