Breskur ráðherra viðurkennir ástarsamband við vændiskonu sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 13. apríl 2016 07:52 Að minnsta kosti fjórir fjölmiðlar vissu af málinu, en sögðu ekki frá því. Því hafa vaknað spurningar um hvort málið hafi haft áhrif á störf ráðherrans. vísir/epa
John Whittingdale, ráðherra menningarmála í Bretlandi, viðurkenndi í gærkvöldi að hafa átt í ástarsambandi við vændiskonu um nokkurra mánaða skeið. Hann sagðist þó ekki hafa vitað við hvað hún starfaði fyrr en síðar. Whittingdale sagðist í samtali við BBC Newsnight hafa kynnst konunni á stefnumótasíðu og að samband þeirra hafi varað frá ágúst 2013 til febrúar 2014. Hún hafi aldrei gefið það til kynna að hún starfaði sem vændiskona. Hann hafi svo slitið sambandi þeirra þegar hann hafi fengið fregnir af því að selja ætti sögu þeirra til fjölmiðla. Á þeim tíma sem Whittingdale átti í sambandi við konuna starfaði hann sem formaður menningar-, fjölmiðla- og íþróttanefndar breska þingsins. Spurningar hafa vaknað um hvort málið hafi haft áhrif á störf hans en Verkamannaflokkurinn hefur meðal annars farið fram á að gripið verði til aðgerða. Whittingdale þvertekur þó fyrir að málið hafi haft áhrif á störf hans. „Þetta er gömul saga sem var nokkuð vandræðaleg á þeim tíma. Þetta atvikaðist áður en ég tók við núverandi stöðu en hefur aldrei haft áhrif á þær ákvarðanir sem ég hef tekið sem menningarmálaráðherra,“ sagði Whittingdale í þættinum. Að minnsta kosti fjórir fjölmiðlar vissu af málinu, en það eru People, the mail on Sunday, Sun og Independent, að því er segir á BBC, en enginn þeirra sagði frá því.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Skafið og saltað Veður Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira