Munu ekki sætta sig við niðurstöður Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 14. apríl 2016 07:00 Bashar Al-Assad Sýrlandsforseti setur atkvæði sitt í kjörkassann. Nordicphotos/AFP
Búist er við því að Ba'ath-flokkurinn, flokkur Bashars Al-Assad Sýrlandsforseta, hafi unnið stórsigur í þingkosningum sem fóru fram í Sýrlandi í gær. Ráðamenn á Vesturlöndum eru ekki hrifnir af kosningunum og hefur forsetinn verið sakaður um að reyna að spilla fyrir friðarviðræðum á milli stríðandi fylkinga í landinu sem hófust á ný í svissnesku borginni Genf í gær. Ein helsta krafa andstæðinga ríkisstjórnar Assads í viðræðunum er að hann segi af sér embætti. Talsmaður utanríkisráðuneytis Þýskalands sagði í gær ómögulegt að halda sanngjarnar og lýðræðislegar kosningar í því ástandi sem er við lýði í Sýrlandi í dag, en í landinu ríkir borgarastyrjöld. „Þýska ríkisstjórnin mun ekki sættast á niðurstöður kosninga sem ríkisstjórn Assads boðar til,“ sagði talsmaðurinn, Martin Schäfer. Ríkisstjórn Bretlands sendi einnig frá sér yfirlýsingu. Þar eru kosningarnar kallaðar skrumskæling lýðræðisins. Einnig voru bandamenn Assads, sérstaklega Rússar, hvattir til að þrýsta á að Assad gefi eftir í friðarviðræðum. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, sagði kosningarnar hins vegar nauðsynlegar til að koma í veg fyrir að tómarúm skapaðist í landinu. Þá segir talsmaður ríkisstjórnar Assads kosningarnar samræmast stjórnarskrá og alls ótengdar friðarviðræðunum í Genf. Niðurstöður kosninga lágu ekki fyrir í gærkvöldi. Síðast var kosið árið 2012 en þá fékk flokkur Assads 168 þingsæti af 250. Borgarastyrjöldin í Sýrlandi hefur staðið yfir frá árinu 2011. Að minnsta kosti 470 þúsund hafa látið lífið. Nærri átta milljónir eru á vergangi innan landsins eftir að heimili þeirra voru lögð í rúst og um fjórar milljónir hafa flúið land. Vopnahlé hefur verið í landinu frá því í febrúar en þó eru hryðjuverkahreyfingarnar Al-Nusra, Al-Kaída og Íslamska ríkið undanskildar því.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 14. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Skafið og saltað Veður Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent Fleiri fréttir Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Sjá meira