Trúarbragðalögreglu Sádi-Arabíu skipað að hegða sér á „varfærinn og manneskjulegan“ hátt Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 13. apríl 2016 23:54 Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa gefið út nýja tilskipun sem ætlað er að skerða völd hinnar valdamiklu trúarbragðalögreglu þar í landi. Vísir/AFP
Yfirvöld í Sádi-Arabíu hafa gefið út nýja tilskipun sem ætlað er að skerða völd hinnar valdamiklu trúarbragðalögreglu þar í landi. Samkvæmt nýju tilskipunni þurfa meðlimir hennar að haga sér á „varfærinn og manneskjulegan“ hátt. Trúarbragðalögreglan hefur það hlutverk að ganga úr skugga um að íbúar og gestir Sádi-Arabíu fylgi hinum íhaldssama íslamska sið sem þar ríkir. Hefur hún verið gagnrýnd fyrir harkalegar, og oft á tíðum banvænar, aðferðir sínar við að framfylgja siðum Sádí-Arabíu. Nýja tilskipunin virðist vera liður í því að skerpa á hlutverki hinnar venjulegu lögreglu og svo trúarbragðalögreglunnar. Í henni segir að það sé hlutverk hinnar venjulegu lögreglu, en ekki trúarbragðalögreglunnar, að handtaka fólk. Trúarbragðalögreglan er valdamikil og í henni eru um fimm þúsund meðlimir. Hafa þeir það hlutverk að fylgjast með opinberum rýmum á borð við verslunarmiðstöðvar og almenningsgarða. Reynir að hún að koma í veg fyrir að menn og konur hittist á almannafæri auk þess sem að hún gengur úr skugga um að verslanir loki á meðan bænahaldi stendur. Konur að hafa á undanförnum árum risið upp gegn trúarbragðalögreglunni í auknum mæli og svarað henni fullum hálsi er meðlimir hennar hafa haft afskipti af þeim. Hefur trúarbragðalögreglan oft á tíðum stöðvað menn og konur sem ferðast saman í bíl og krafist þess að sjá sönnun þess að viðkomandi séu gift. Hin nýja tilskipun virðist vera ætluð til þess að stöðva þetta en þó liggur ekki ljóst fyrir hver muni sjá til þess að henni sé framfylgt.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira