12 milljarðar vinnudaga tapast Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 16. apríl 2016 07:00 Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir að séu andleg veikindi ekki tekin alvarlega muni það hafa alvarlegar efnahagslegar afleiðingar. NORDICPHOTOS/GETTY
Verði meðferð vegna þunglyndis og kvíða ekki bætt getur það haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar á heimsvísu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, um afleiðingar þess að taka ekki andleg veikindi alvarlega. Þeim sem glíma við andleg veikindi hefur fjölgað verulega á undanförnum árum. Árið 1990 voru þeir 416 milljónir en árið 2013 var fjöldinn 615 milljónir. Í viðtali við breska blaðið The Guardian er haft eftir aðalframkvæmdastjóra WHO, Margaret Chan, að sjá verði til þess að allir karlar, konur og börn fái aðgengi að heilbrigðisþjónustu vegna andlegra veikinda. Nær tíu prósent jarðarbúa glíma við andleg veikindi. Reiknað hefur verið út að tólf milljarðar vinnudaga tapist á hverju ári fram til ársins 2030 verði ekki brugðist við. Höfundar skýrslunnar, sem birt er í Lancet Psychiatry, hafa reiknað út að fyrir hvern dollara sem varið er í betri meðferð við þunglyndi og kvíða fáist fjórir dollarar til baka þar sem batinn verði skjótari og viðkomandi komist fyrr til starfa. Rannsóknin er meðal annars byggð á kostnaði vegna heilbrigðismála í 36 löndum. Skýrsluhöfundar leggja áherslu á að þótt vandamálið sé ekki alls staðar jafnmikið þurfi öll lönd að gefa því gaum. Skýrslan var birt fyrir fund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Washington núna um helgina. Meðal fundarefna á dagskrá er hvernig bæta má andlega heilsu.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. apríl.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Sjá meira