Sló litla bróður sinn með öxi í höfuðið 16. apríl 2016 11:16 Átök bræðranna áttu sér stað í íbúð móður þeirra í Osló. Vísir/AP
Norskur maður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af ákæru um að hafa reynt að myrða bróður sinn þegar hann sló hann með öxi í höfuðið. Fyrir rétti í Osló sagðist maðurinn hafa gert það í sjálfsvörn en málið má rekja til 22. maí árið 2014 þegar bræðurinn sátu saman að sumbli á heimili móður þeirra. Fram kemur í dómnum að framan af kvöldi hafi allt leikið í lyndi. Þegar líða tók á kvöldið hafi eldri bróðirinn þó tekið að ókyrrast og að lokum vísað þeim yngri á dyr og læst hann úti. Yngri bróðirinn lét ekki þar við sitja heldur braust inn til þess að nálgast hleðslutæki sem hann hafði skilið eftir. Þegar hann var kominn inn aftur hafi hann hótað eldri bróður sínum lífláti og verið hinn argasti. Það var þá sem hinn rúmlega þrítugi greip öxina, sem geymd var undir rúmi, og skipaði litla bróður sínum að yfirgefa heimilið.Hlaut lífshættulega áverka „Skap litla bróður míns hafði versnað og hann spýtti út sér að hann myndi drepa mig. Ég gerði ráð fyrir því að hann væri með hníf á sér og ég fann að hann var eirðarlaus. Í hræðslu minni fannst mér herbergið lýsast upp og ég sló hann með bakka axarinnar, án þess að hafa séð hvað ég var að gera,“ sagði maðurinn fyrir rétti. Skömmu síðar kom móður þeirra heim og sá yngri son sinn alblóðugan á gólfinu. Hann hafði hlotið lífshættulega áverka og opið höfuðkúpubrot. Nágranni hennar kom svo á vettvang eftir að hafa heyrt mikil óhljóð og öskur. Í frétt VG um málið kemur fram að við aðalmeðferð málsins hafi ítrekað verið sýnt fram á að eldri bróðirinn hafi haft alla ástæðu til að vera smeykur við þann yngri. Það hafi ekki síst verið í ljósi þess að sá yngri var dæmdur fyrir að hafa hótað fjölskyldumeðlimum ofbeldi og lífláti árið 2007. Nánar um málið á vef VG.
Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira