Kannast ekki við að Sigmundur Davíð hafi starfrækt greiningardeild í forsætisráðuneytinu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. apríl 2016 22:01 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, þingmaður og formaður Framsóknarflokksins. Vísir/Anton
Leiðari Sigurjóns M. Egilssonar á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun hefur vakið nokkra athygli. Í leiðaranum greindi Sigurjón frá greiningardeild sem hann segir að hafi verið starfrækt í forsætisráðuneytinu í tíð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem flokkaði það sem Sigurjón og aðrir sögðu og skrifuðu. Þáverandi aðstoðarmaður Sigmundar kannast ekki við slíka greiningardeild. „Ráðherrann fyrrverandi hafði greiningardeild í sínu ráðuneyti. Sú greiningardeild vann ekki við það að greina afleiðingar þess að fólk eins og hann léki ekki með, ekki af fullri alvöru, í baráttu Íslendinga til endurreisnar eftir afleiðingar af starfi ömurlegra stjórnmálamanna á árunum fyrir hrun. Nei, sú greiningardeild dundaði sér við að flokka niður það sem ég sagði og skrifaði sem og ýmsir aðrir. Þetta veit ég frá fyrstu hendi. Ég var kallaður á teppið,“ sagði Sigurjón í leiðaranum. Honum hafi svo verið tilkynnt að niðurstaðan úr greiningunni væri sú að hann gerði ríkisstjórn Sigmundar Davíðs erfitt fyrir og væri henni til trafala. Þá hafði hann samkvæmt greiningunni oftast verið vondur við Framsóknarflokkinn. Vísir hafði samband við Jóhannes Þór Skúlason sem var aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs og spurði hann út í greiningardeildina sem Sigurjón talaði um og þá fullyrðingu hans að hann hefði verið kallaður á teppið í forsætisráðuneytinu. Jóhannes vildi lítið tjá sig um málið en sagðist þó ekki kannast við að starfrækt hafi verið sérstök greiningardeild í forsætisráðuneytinu sem hefði það hlutverk að greina Sigurjón M. Egilsson eða aðra fjölmiðlamenn. Hlusta má á leiðara Sigurjóns M. Egilssonar í spilaranum hér að neðan.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Sjá meira