Innlent

Tækifæri til þess að endurskilgreina Ólaf Ragnar

Birgir Örn Steinarsson skrifar
Merkið #nólafur hefur verið mikið notað síðan forsetinn tilkynnti að hann ætlaði að blanda sér í kosningaslaginn.
Merkið #nólafur hefur verið mikið notað síðan forsetinn tilkynnti að hann ætlaði að blanda sér í kosningaslaginn. Visir
Ekki virðast allir vera jafn hrifnir af því að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, hafi ákveðið að sækjast eftir endurkjöri í fimmta skipti. Fólk í andstöðu við áframhaldandi setu forsetans byrjaði strax í gær að styðjast við merkinguna #nólafur í færslum sínum á samfélagsmiðlum.

Sumir birtu 20 ára gamlar myndir af sjálfum sér til þess að undirstrika hversu löng forsetatíð Ólafs hefur verið. Þar var óbeint vitnað í tískubylgju sem varð til á Facebook á dögunum vegna Barnamenningarhátíðar þar sem fólk deildi barnamyndum af sjálfu sér, hátíðinni til stuðnings.

Efnt var til undirskriftasöfnunar á netinu í gær þar sem Ólafur Ragnar er hvattur til þess að hætta við framboð sitt. Hafa um 3000 manns skrifað þar undir.

Andrés telur að forsetaframbjóðendur verði að tileinka sér aðrar aðferðir en hafa tíðkast áður fyrr í forsetakosningum.
Ekki töff að styðja Ólaf

Andrés Jónsson almannatengill telur að með ákvörðun sinni um að sækjast eftir endurkjöri sé forseti að taka vissa áhættu. Það sýni sig á þeirri andstöðu sem nú þegar sé komin upp á yfirborðið á samfélagsmiðlum.

„Hann hefur eiginlega skipt um kjósendahóp á undanförnum árum. Margir sem eru að fara kjósa hann eru fólk sem kaus hann kannski ekki upphaflega. Fólk sem eru ekkert svakalegir aðdáendur en kýs hann af öðrum ástæðum. Það þykir ekkert töff að vera stuðningsmaður hans. Þannig að í rauninni þarf ekkert mikið að gerast til þess að það myndist einhver andstæða gegn honum.“

Sjá einnig: Forsetaframboð kostar minnst tíu milljónir

Andrés segir styrk Ólafs liggja meðal annars í því hversu sterkur hann er í kosningabaráttu. Flestir þeirra sem höfðu tilkynnt um framboð hafa ákveðið að taka slaginn við Ólaf. Andrés furðar sig þó á því að enginn frambjóðandi hafi í gær tappað inn á „nólafur“-bylgjuna sem hófst strax á netinu.

„Ég held að það sé tækifæri fyrir einhvern að endurskilgreina Ólaf og nýta sér þessa bylgju. Það fólk sem er tilbúið að gera Ólaf að tákni hins gamla Íslands og kjósa eitthvað nýtt. Það er einhver óttablandin virðing í gangi sem sumir sýna Ólafi. Það voru einstaka pönkarar eins og Elísabet Jökulsdóttir sem skutu á hann en enginn sagði neitt afgerandi eða hafði neina skoðun á erindi hans sem mér fannst mjög veikt. Það eru alveg rök að maður eigi að vera forsetalegur og ekki láta draga sig í drulluna en það er þar sem Ólafur heyir sína baráttu. Þú verður að vera tilbúinn til þess annars hefur hann betur. Það sannaðist 2012 þegar Þóra (innsk: Arnórsdóttir) ætlaði að vera fyrir ofan slíka umræðu og ekki að vera í sama slag og hann. Það gekk ekki.“

Þarf að skora hann á hólm

Ólafur Ragnar hefur hingað haldið sinni kosningabaráttu fyrir utan samfélagsmiðla sem hlýtur að teljast nokkuð merkilegt fyrir okkar tíma. Andrés telur að best væri fyrir aðra frambjóðendur að reyna að draga forsetann inn í umræðuna þar.

„Stuðningsmenn hans eru ekki áberandi þar. Hann hefur hingað til geta valið sér svolítið vettvang sjálfur. Ef ég væri sá frambjóðandi sem telur sig eiga möguleika og ætlaði virkilega að heyja við hann kosningabaráttu, þá myndi ég skora hann á hólm þar. Segja við fólk, að ef það vill að skipt verði um forseta oftar en á sex kjörtímabila fresti – þá ætti það að gefa sig upp við viðkomandi í næstu könnun. Þá bara til þess eins að sýna Ólafi að við þurfum engan landsföður.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×