Lífið

Sjálfkeyrandi hjól og Snoop Vision: Bestu aprílgöbbin úti í heimi 2016

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Öll bestu aprílgöbb dagsins í dag úti í hinum stóra heimi á einum stað.
Öll bestu aprílgöbb dagsins í dag úti í hinum stóra heimi á einum stað. Skjáskot
Ef þú lesandi góður, hefur ekki litið á dagatal í dag, er tímabært að opinbera það að í dag er 1. apríl, Alþjóðlegur hrekkja- og gabbdagur sem haldinn er hátíðlegur víða um veröld. Upprunan dagsins má rekja allt aftur til miðalda og því er þetta rótgróinn hefð út um allan heim.

Eitthvað hefur þó skolast til hjá sumum að til þess að aprílgabb teljist fullgilt aprílgabb er nauðsynlegt að láta fólk fara yfir þrjá þröskulda samkvæmt Vísindavefnum.

Það hefur þó ekki stoppað fjölmiðla víða um heim til þess að búa til sín aprílgöbb og hér er samantekt yfir bestu aprílgöbb heimsins úti í heimi.

Mic Drop frá Gmail

Póstþjónustu Google, Gmail, er ein sú allra vinsælasta og í tilefni dagsins kynntu þeir glænýjan möguleika, svokallaðan Mic drop hnapp sem hægt var að nota ef ske kynni að einhver vildi losna úr pirrandi tölvupóstsamskiptum. Sé smellt á hnappinn er viðkomandi fjarlægður úr samtalinu og fær hann ekki fleiri pósta úr þessu samtali.

Gmail setti hnappinn í alvöru í gang en þegar líða fór á daginn var hann tekinn úr umferð. Talsmaður Google segir að hann hafi skapað meiri vandræði en reiknað var með og var honum snarlega kippt úr sambandi. 

Greint er frá því á vef BBC að notendur hafi lent í miklum vandræðum vegna málsins, einn segist hafa verið rekinn vegna þess að hann ýtti óvart á hnappinn á meðan annar segist hafa misst af draumastarfinu eftir að hafa óvart sent Mic Drop skilaboð.

via GIPHY

via GIPHY

Talandi um BBC

Hrekkur BBC var ágætur. Sagt var frá því að BBC-búðin myndi bjóða upp á spánnýja nýjung. VHS-spólur! Í ljósi vinsælda vínyl-platna hafi verið ákveðið að kynna til sögunnar VHS-spólur á nýjan leik. Hægt væri að panta hvern einasta þátt sem BBC hefur hefur framleitt á VHS. 

Snoopvision frá YouTube

Hér beint fyrir ofan er myndband frá YouTube og ramminn utan um myndbandið er örlítið óvenjulegri í dag en alla aðra daga ársins. Við hliðina á því þar sem hægt er að stilla gæði myndbandsins er kominn óvenjulegur hnappur. Snoop dog er mættur og kynnti YouTube í dag Snoopvision.

Er markmiðið að hægt sé að horfa á Snoop Dog horfa á öll myndbönd sem eru á YouTube og það í 360 gráðum. Ekki slæmt, ekki svo slæmt.

Sjálfhjólandi hjól fra Google

Sjálfkeyrandi bílar eru nýjasta nýtt og má búast við að á næstu áratugum muni slíkir bílar taka yfir vegina. Google í Hollandi, þar sem hjólreiðar eru afar vinsælar, tóku þetta þó skrefinu lengra og kynntu í dag til sögunnar sjálfhjólandi hjól

Köttur kosinn yfirköttur

Borgarstjóri japanska bæjarins tilkynnti að loksins hefði verið kosið í embætti yfirkattar í bænum.

Kína bannaði aprílgöbb

Ríkissfjölmiðill Kína gaf í dag út tilkynningu þess efnis að aprílgöbb á 1. apríl væru ókínversk sem pössuðu ekki við menningargildi né hefðbundin gildi sósíalisma. Þetta væri vestræn hefð og ekki ætti að skapa né trúa aprílgöbbum. Aprílgabb eða ekki?

 

Meira að segja Tony Blair, fyrrum forsætisráðherra Bretlands sagði brandara

JK Rowling, skapari Harry Potter gekk til liðs við skosku byltingarhreyfinguna

Og síðast en ekki síst



Hér fyrir neðan smá sjá samantektarmyndband The Guardian um tíu bestu og verstu aprílgöbbin þetta árið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×