Neil Lennon hættur hjá Bolton Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2016 12:26 Neil Lennon, fyrrum knattspyrnustjóri Bolton. Vísir/Getty
Neil Lennon hefur stýrt sínum síðasta leik hjá enska b-deildarliðinu Bolton en félagið sendi frá sér fréttatilkynningu í hádeginu þar sem segir frá brotthvarfi knattspyrnustjórans. Samkvæmt fréttatilkynningu Bolton er þetta sameiginleg ákvörðun Neil Lennon og stjórnar félagsins. Það eru aðeins fimm dagar síðan að Sports Shield félagið tók yfir félagið en Dean Holdsworth, fyrrum leikmaður Bolton, leiðir félagið. Jimmy Phillips, sem hefur stýrt unglingaliði félagsins, mun stýra liði Bolton á meðan leitað er að framtíðarstjóra. Það hefur ekkert gengið hjá Bolton á þessu tímabili en liðið er í neðsta sæti deildarinnar nú ellefu stigum frá öruggu sæti. Síðasti leikur liðsins undir stjórn Lennon var 2-1 tap á móti Preston North End á laugardaginn. Neil Lennon fékk íslenska landsliðsmanninn Eið Smára Guðjohnsen til að koma aftur til Bolton á síðasta tímabili og skorað Eiður þá 6 mörk í 24 leikjum í öllum keppnum. Liðið endaði þá í 18. sæti. Bolton hefur aðeins skorað 36 mörk í 37 leikjum í ensku b-deildinni á þessu tímabili og hefur ekki fagnað sigri í síðustu sjö leikjum eða síðan liðið vann Rotherham United 6. febrúar. Sigurinn á Rotherham United er annar af tveimur sigurleikjum Bolton í þrettán deildarleikjum liðsins á árinu 2016. Neil Lennon hafði stýrt Bolton frá því í október 2014. Hann var stjóri Celtic frá 2010 til 2014 og vann þá fjórar stóra titla með liðinu.
Enski boltinn Mest lesið Katrín Jakobs komin í FRÍ Sport Uppgjörið: Ísland - Portúgal 32-24| Ísland er á leiðinni á EM Handbolti Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Íslenski boltinn Rekinn án skýringa og ætlar í mál Handbolti Segir svindl að karfa Kára standi: „Ég upplifi þetta sem algjöra þvælu“ Körfubolti Í slæmum málum fyrir að hrópa á McIlroy: „Færðu mér son minn aftur“ Golf Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik Íslenski boltinn Fram - ÍA | Standast Skagamenn væntingarnar? Íslenski boltinn Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Enski boltinn Mastersvaktin: Hver mun klæðast græna jakkanum? Golf Fleiri fréttir Öruggt hjá City sem eykur á skjálfta Skyttanna Spurs áfram í fallsæti og fyrirliðinn grátandi af velli Sjáðu unglinginn og Salah skora og mörkin sem komu Arsenal í klípu Táningurinn í stuði í dýrmætum sigri Liverpool Dramatík og Meistaradeildarvon lifir góðu lífi „Þetta er högg í andlitið“ Skjálfti í Skyttunum Kemst að munnlegu samkomulagi við Tottenham Sjáðu Hamrana skora fjögur og senda Tottenham í fallsæti Sendu Tottenham niður í fallsæti með stórsigri Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Robertson kveður Liverpool og leitar á önnur mið í sumar „Við hefðum allir verið settir inn á hæli“ Niðurstaðan staðfest og fall blasir við Leicester Vill að enska landsliðið taki sextán ára táning með á HM Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Isak í hópnum í París Fimm ensk lið í Meistaradeildinni á næsta ári Manchester United nýtir fríið til að fara í æfingaferð til Írlands „Finnur fyrir metnaðinum og möguleikunum“ Sleppur við bann eftir að hafa hrint dómara: „Algjör vanvirðing“ Tekur skóna af hillunni fyrir gamlingjabolta á Englandi Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Hetja Leeds: „Þetta eru töfrar bikarsins“ Fá City eftir að hafa slegið Arsenal út Leeds í undanúrslit í fyrsta sinn í 39 ár eftir ótrúlega dramatík Skytturnar úr leik: Dýrlingarnir sýndu Arsenal enga miskunn Chelsea flaug áfram í undanúrslit Szoboszlai svekktur: „Hugarfarið var ekki nógu gott“ Sjá meira