Meintur nauðgari í áframhaldandi gæsluvarðhald sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 16. mars 2016 11:06 Karlmaður sem grunaður er um að hafa reynt að nauðga tveimur konum í fyrra hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. vísir/heiða helgadóttir
Hæstiréttur úrskurðaði í gær karlmann í gæsluvarðhald til 11. apríl næstkomandi vegna gruns um að hafa reynt að nauðga tveimur konum í desember í fyrra. Maðurinn, sem hefur verið ákærður af héraðssaksóknara, hefur sætt gæsluvarðhaldi frá 18. desember. Maðurinn er grunaður um tvær tilraunir til nauðgana aðfaranótt sunnudagsins 13. desember í miðbæ Reykjavíkur. Honum er gefið að sök að hafa veist að tveimur konum með skömmu millibili í því skyni að hafa við þær samræði. Í ákærunni segir að konurnar hafi báðar hlotið áverka og samkvæmt framburðum þeirra og annarra vitna hafi það orðið þeim til bjargar að ákærði varð fyrir utanaðkomandi truflun. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 10. febrúar þar sem maðurinn neitaði sök.Mynd sem lögreglan óskaði eftir að birt yrði í fjölmiðlum af meintum árásarmannimynd/lrhGekk aftan að henni og greip um munn hennar Fyrri árásin átti sér stað á Tjarnargötu í Reykjavík en tilkynning um hana barst lögreglu klukkan 3.05 um nóttina. Á vettvangi hitti lögreglan fyrir stúlku sem var í miklu uppnámi. Hún sat í snjónum í rifnum buxum og grét. Hún lýsti því að hún hafi verið að ganga heim úr bænum þegar hún tók eftir manni sem gekk fyrir aftan hana á Tjarnargötunni. Hann hafi gengið mjög nálægt henni, hún hafi orðið hrædd og vikið sér til hliðar svo maðurinn gæti gengið framhjá henni. Maðurinn hafi hins vegar stoppað ofar í götunni en stúlkan hélt för sinni áfram. Þegar hún gekk fram hjá manninum hafi hann svo gripið í hana, reynt að taka af henni símann og kallað hana „bitch“. Hann hafi þá gripið um munn stúlkunnar, ýtt henni að húsinu, rifið buxurnar hennar og reyndi að hneppa frá sínum buxum. Hún hafi þá öskrað eins hátt og hún gat. Í skýrslutöku lögreglu sagði stúlkan að maðurinn hafi verið harkalegur við hana en hún öskraði meira og þá kom fólk að þeim. Við það hafi maðurinn farið.Nokkrar mínútur á milli Einungis fimm mínútum eftir að lögreglu barst tilkynning um árásina barst lögreglu tilkynning um aðra árás á stúlku í Þingholtsstræti. Þar hafi lögregla hitt stúlkuna sem var grátandi og í miklu uppnámi. Hún lýsti því að hafa verið ein á gangi upp Bankastræti þegar maður hafi komið aftan að henni og lagt hendur yfir axlir hennar. Maðurinn hafi svo gripið fastar og fastar utan um hana og hún reynt að losa sig en hann hafi þá gripið um munn hennar og gengið ákveðið með hana inn Þingholtsstræti. Þau hafi ekki verið komin langt inn götuna þegar maðurinn hafi svo kastað henni utan í bíl sem lagt var í Þingholtsstræti og reynt að setjast klofvega yfir hana. Kvaðst stúlkan að sér hefði liðið allan tímann eins og hann ætlaði að nauðga henni en síðan hafi líklega einhver komið að því allt í einu hafi maðurinn hlaupið í burtu.Önnur árásin öll til á upptöku Á meðal gagna í málinu eru upptökur úr eftirlitsmyndavélum miðbæjarins þar sem maðurinn sést á gangi í Tjarnargötu og þá er seinni árásin öll til á upptöku. Myndir úr myndavélunum voru birtar í fjölmiðlum þann 16. desember síðastliðinn að beiðni lögreglu. Fjöldi ábendinga hafi borist lögreglu í kjölfarið og þá hafði maðurinn sjálfur haft samband við lögreglu og kvaðst þekkja sig á myndunum. Að mati lögreglu er ljóst af upptökum úr eftirlitsmyndavélum, lýsingum vitna og stúlknanna á útliti og klæðaburði mannsins að um sama árásarmann er að ræða í báðum tilfellum. Eins og áður segir er hann nú í gæsluvarðhaldi á grundvelli almannahagsmuna til 19. janúar en þau brot sem hann er grunaður um geta varðað allt að 16 ára fangelsi.
Tengdar fréttir Áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um tilraunir til tveggja nauðgana Meint brot þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. 17. febrúar 2016 17:37 Mest lesið Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Erlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Innlent Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Erlent Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Innlent Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Innlent „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Innlent Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Erlent Fleiri fréttir Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Hópuppsögn í borginni: Störfum fækkar um 40 prósent Vara við netsvikum í nafni „netglæpalögreglunnar“ Fimm vilja stýra HSA Vara við aðskotaefni í tei Vöruðu við að risaskjálfti væri í vændum Upplýsingafulltrúum sagt upp og mannréttindaskrifstofa lögð niður Segir Suðurlandsbraut fara aftur í vinnslu án þess að tefja verkefnið „Virðist vera að það sé kerfislægt brotið á fötluðu fólki“ Stórskrýtið að ekki séu til lagaleg tæki til að stöðva veiðarnar Bjóða út jarðvinnuframkvæmd vegna Stóra-Hrauns Tveir neita sök en hinn þriðji er í Jórdaníu Fleiri andvígir hvalveiðum en fylgjandi Sér ekki eftir framsetningu á sleggjunni Vasaþjófar á ferð í miðborginni Borgin skorar á ríkið að bregðast við námsgagnaskorti Sjá meira
Áfram í gæsluvarðhaldi vegna gruns um tilraunir til tveggja nauðgana Meint brot þess eðlis að ætla megi að varðhald sé nauðsynlegt með tilliti til almannahagsmuna. 17. febrúar 2016 17:37