Um 70 prósent landsmanna búa við sára fátækt Birta Björnsdóttir skrifar 16. mars 2016 19:15
Fimm ár eru liðin frá upphafi stríðsátaka í Sýrlandi. Innviðir landsins eru í molum og um 70 prósent landsmanna búa við sára fátækt. Það gefur augaleið að áralangt stríðsástand, loftárásir og skæruhernaður öfgasamtaka setur mark sitt á landsvæði. Því er vert að staldra við, fimm árum eftir að átök hófust í Sýrlandi, og skoða áhrifin sem ófriðurinn hefur haft á landið. Árið 2011 bjuggu 24,5 milljónir manna í Sýrlandi, en nú búa þar 17,9 milljónir. Sex milljónir Sýrlendinga flokkast sem flóttamenn, fólk sem þurft hefur að flýja heimkynni sín. Tala látinna er á reiki, en talið er að ekki færri en 250.000 Sýrlendingar hafi látist vegna stríðsátakanna undanfarin fimm ár. Það tæki um 19 klukkustundir að lesa upp nöfn þeirra allra. Atvinnuleysi í Sýrlandi mældist um 14 prósent árið 2011, í dag er helmingur alls vinnufærs fólks í landinu án atvinnu. Um 70 prósent landsmanna býr við sára fátækt og eiga í vandræðum með að verða sér út um helstu nauðsynjavörur. Samdráttur í matvælaframleiðslu og stopul matarhjálp skilar sér í himinháu vöruverði í Sýrlandi. Sem dæmi má nefna að á undanförnum fimm árum hefur mjólk hækkað um 15.000 prósent í verði, brauð um 3.543 prósent og hveiti um 1.166 prósent að meðaltali á landsvísu. 40 prósent Sýrlendinga hafa engan aðgang að grunn heilbrigðisþjónustu og tæplega 60 prósent þeirra 113 spítala sem starfræktir voru í landinu fyrir fimm árum, eru ýmist lokaðir eða aðeins starfhæfir að hluta. Yfirvöld í Sýrlandi og uppreisnarmenn, ásamt vesturveldunum og Sameinuðu þjóðunum, hafa skipulagt vopnahlé og friðarviðræður undanfarnar vikur. Ljóst er að mikið verk er fyrir höndum til að sætta stríðandi fylkingar og hefja uppbyggingu til að koma Sýrlandi aftur í upprunalegt horf.
Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Sjá meira