Innlent

Þór á leið til vélarvana skips

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Daníel
Varðskipið Þór er nú að leið að vélarvana skipi vestur af Látrabjargi. Landhelgisgæslunni barst í dag beiðni frá fiskiskipinu Kristínu GK-457 þar sem það var vélarvana um 44 sjómílur vestur af Látrabjargi. Þór var þá í um 68 sjómílna fjarlægð og var sendur á vettvang.

Samkvæmt tilkynningu frá gæslunni segir að Þór sé væntanlegt til Kristínar um klukkan ellefu í kvöld. Varðskipið mun draga fiskiskipið til hafnar.

Kristín GK 457 er 400 brúttótonna fiskiskip og 42 metrar á lengd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×