Innlent

Þór á leið til hafnar með vélarvana skip

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Varðskipið Þór er á leið til hafnar með fiskiskipið Kristínu GK 457 sem varð vélarvana í gær.
Varðskipið Þór er á leið til hafnar með fiskiskipið Kristínu GK 457 sem varð vélarvana í gær. Mynd/Landhelgisgæslan
Varðskipið Þór er nú á leið til hafnar með fiskiskipið Kristínu GK 457 sem varð vélarvana í gær um 44 sjómílur vestur af Látrabjargi. Reiknað er með að varðskipið komi með Kristínu til hafnar í Reykjavík í kvöld.

Í gær barst Landhelgisgæslunni beiðni um aðstoð frá Kristínu GK 457. Var Þór sendur á vettvang en varðskipið var þá í um 68 sjómílna fjarlægð.

Meðfylgjandi myndir er teknar úr þyrlu Landhelgisgæslunnar sem var við löggæslu og eftirlit á Breiðafirði, Faxaflóa og Suðvesturmiðum í dag.

Mynd/Landhelgisgæslan

Tengdar fréttir

Þór á leið til vélarvana skips

Landhelgisgæslunni barst í dag beiðni frá fiskiskipinu Kristínu GK-457 þar sem það var vélarvana um 44 sjómílur vestur af Látrabjargi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×