Stuttnefja talin vera á barmi útrýmingar Svavar Hávarðsson skrifar 18. mars 2016 07:00 Endurmat á stofnstærð sýnir 43% fækkun stuttnefju frá 1985. mynd/Fuglavernd
Fuglavernd ásamt fuglaverndarsamtökum í Danmörku, Noregi, Bandaríkjunum og Alþjóðasamtökunum BirdLife hafa sent grænlensku landsstjórninni áskorun um að hætta veiðum á stuttnefju þegar í stað. Nú er svo komið að stuttnefja er talin á barmi útrýmingar, að mati samtakanna. Guðmundur A. Guðmundsson, dýravistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands (NÍ), segir að engu sé logið um vandræðin sem stuttnefjan er í – og það sama eigi við um aðra svartfuglastofna við Ísland þó staðan sé kannski ekki eins alvarleg og hjá stuttnefjunni. Allt frá árinu 2000 hefur stuttnefja verið á válista Náttúrufræðistofnunar, og þá strax talin „í yfirvofandi hættu“ vegna fækkunar undangenginna ára. „Hrakfarirnar verða aðallega raktar til fæðuskorts en hluti skýringarinnar getur vel verið veiðar Grænlendinga á stofninum á þeim tíma sem hann dvelur á vetrarstöðvum sínum,“ segir Guðmundur en til viðbótar við íslenska stofninn safnast stuttnefjur annars staðar frá á þetta svæði á sama tíma. Válistinn hefur ekki verið endurskoðaður síðan árið 2000 en það er mat Guðmundar að stuttnefjan færi örugglega í hærri flokk við endurskoðun válistans og þá líklega í þann flokk sem haförn hefur skipað síðan árið 2000 – eða „í hættu“.Guðmundur A. GuðmundssonFuglavernd og systursamtökin telja stefna í að veiðar útrými tegundinni sem varpfugli á Grænlandi á fáum árum, en gríðarlegt veiðiálag mun vera á fugla við vesturströnd landsins þar sem vetrarstöðvar íslenska stofnsins eru og varpstöðvar þess grænlenska. Til þess ber að líta að þrátt fyrir válistaflokkun stuttnefju er hún ekki friðuð fyrir veiðum á Íslandi. Meirihluti ráðherranefndar mælti hins vegar með friðun allra tegunda svartfugla við Ísland árið 2011 – og þá til fimm ára. Starfshópurinn taldi helstu orsakir hnignunar stofnanna vera fæðuskort en að tímabundið bann við veiðum og nýtingu myndi flýta fyrir endurreisn þeirra. Frumvarp var skrifað en það dagaði uppi. Fulltrúar Skotvís sátu í nefndinni og stóðu ekki að tillögum hennar, enda þeirrar skoðunar að veiðar úr stofnunum hefðu ekkert með fækkun þeirra að gera, heldur hlýnun og viðkomubrestur stofnanna í kjölfarið.
Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Fleiri fréttir Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Sjá meira