Málþóf um menningarminjar Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar 18. mars 2016 21:00 Svandís Svavarsdóttir var ein þeirra sem spurði Sigmund út í efni frumvarpsins. Samsett mynd
Þingmenn stjórnarandstöðunni stóðu í málþófi um frumvarp forsætisráðherra um menningarminjar á Alþingi í dag. Frumvarpið snýr að sameiningu Þjóðminjasafns Íslands og Minjastofnunar í eina stofnun sem mun koma til með að heita Þjóðminjastofnun. Þá verður Þjóðminjasafnið enn höfuðsafn þó það muni falla undir nýju stofnunina. Í greinagerð með frumvarpinu segir jafnframt: „Samhliða þessari tillögu er lagt til að verkefni sem lúta að friðlýsingu húsa og mannvirkja og afnám slíkrar friðlýsingar, sbr. lög um menningarminjar færist til [forsætisráðherra], sem og verkefni Minjastofnunar Íslands samkvæmt lögum um verndarsvæði í byggð.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, sagði þegar hann mælti fyrir frumvarpinu að það væri til þess fallið að skilgreina betur áður óskýr hlutverk stofnanana og það myndi hafa jákvæð fagleg og fjárhagsleg áhrif. Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstri Grænna, var ein þeirra sem tók til máls í umræðunni. Hún vék meðal annars að ráðgjöf Minjastofnunar vegna húsafriðunar. „Í ákvæðinu stendur að í stað „Minjastofnun“ komi orðið ráðherra en ekki orðið „ráðuneyti“. Ég vil spyrja hvort hæstv. ráðherra telji sjálfan sig búa yfir þessari sérfræðiþekkingu, að hann hafi þá bæði tök á því væntanlega að ráðleggja sjálfum sér og gera tillögur til sín sjálfs um það hvaða hús eigi að friðlýsa,“ spurði Svandís. Svandís spurði Sigmund út í þá hagsmunaaðila sem samráð var haft var við við gerð frumvarpsins. „Nú vill svo til að þungavigtaraðilar hafa lýst sig andsnúna málinu að öllu leyti. Ég nefni Félags íslenskra safna og safnamanna, ég nefni Minjastofnun, ég nefni námsbraut í fornleifafræðum,“ sagði hún. Sigmundur sagði að þrátt fyrir að ráðherra færi með málaflokk húsafriðunar væri enn leitað til fagmanna Minjastofnunar vegna þessa. „Hvað varðar samráðið var Capacent fengið til að vinna að fýsileikakönnun á helstu valkostum sem til greina kæmu, eins og ég nefndi í framsöguræðu. Í því skyni voru haldnir fundir með hagsmunaaðilum, viðtöl tekin við fjölmarga starfsmenn stofnananna ásamt því að ýmsar tillögur voru ræddar á fundum stýrihópsins,“ sagði hann.
Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fleiri fréttir Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Sjá meira