Innlent

Harðorður í garð milljónamæringa sem ganga í störfin

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Rannveig Rist á bryggjunni við Straumsvík á miðvikudaginn.
Rannveig Rist á bryggjunni við Straumsvík á miðvikudaginn. Vísir/Anton Brink
Guðmundur Ragnarsson, formaður félags vélstjóra og málmtæknimanna, fordæmir athæfi Rannveigar Rist, forstjóra Rio Tinto Alcan á Íslandi, og Katrínar Pétursdóttur, forstjóra Lýsis auk tíu annarra stjórenda.

Rannveig og Katrín eru á meðal þeirra sem hafa gengið í störf starfsmanna álversins í Straumsvík við útskipun.

„Einn af hornsteinum kjarabaráttu á Íslandi hefur verið krafan um að greidd séu sömu laun fyrir sömu vinnu. Þess vegna urðu mikil umskipti, nú í vikunni, fyrir starfsfólk sem vinnur við lestun og losun skipa. Nú starfar við útskipun í Straumsvík nýtt löndunargengi. Það setur öll viðmiðið í nýjar hæðir og mun væntanlega setja álversdeiluna í Straumsvík í enn harðari hnút,“ segir Guðmundur í harðorðum pistli á heimasíðu félagsins.

Yfirmenn Ísal voru ekki eins röskir við útskipun í fyrradag og vanir hafnarverkamenn eru.Vísir/Vilhelm
Stjórnendur við útskipun í þrjá daga

Útskipun áls hófst við höfnina í Straumsvík um tvöleytið á miðvikudag. Samkvæmt úrskurði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu mega fimmtán stjórnendur ISAL gang í störf hafnarverkamannan sem lögðu niður störf í síðustu viku.

„Þetta er náttúrlega fólk sem vinnur alla jafna á skrifstofunni og er því ekki vant svona vinnu. Maður er kannski mest hræddur um öryggið þar sem menn fá yfirleitt góða leiðsögn í að minnsta kosti tvo daga áður en þeir fara í þessi störf,“ sagði Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar, sem fylgdist með útskipun í fyrradag.

Guðmundur segir framtíðarsýnina fallega fyrir þá einstaklinga sem alla jafna vinna þessi störf, þegar kjörin verða komin á sama stað og verið er að greiða fyrir þessa dagana við útskipun í Straumsvík.

„Í síðasta tekjublaði Frjálsar verslunar var Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi með 6.349.000 krónur á mánuði. Samstarfsmaður hennar á bryggjunni Katrín Pétursdóttir forstjóri Lýsis var með 2.181.000 kr. á mánuði.“

Breytingar á bílaflotanum væntanlegar

Formaðurinn segir í kaldhæðni hlakka til þegar hinn almenni starfsmaður fer á sömu kjör. Þá ætti að sjást breyting um leið á bílaflota starfsmanna.

„Þá mæta fleiri en þær á dýrustu útgáfu af Range Rover og Land Cruiser til vinnu. Svo er að sjá að ekki fylgi mikið álag forstjórastörfum í álverinu og Lýsi, þrátt fyrir milljónamánaðarlaun, þegar þær hafa tíma, næstu mánuðina, til að afgreiða skip í Straumsvík.“

Guðmundur veltir fyrir sér sjálfsvirðingu þeirra sem nú ganga í störf almennra starfsmanna í álveri auðhringsins sem Rio Tinto Alcan sé.

„Fólkið gengur lengra og lengra í að brjóta niður þau gildi sem hafa verið þróuð á íslenskum vinnumarkaði í áratugi. Verður hægt að bera virðingu fyrir svona einstaklingum sem leggja sig svo lágt að ganga blint í að þóknast erlendum auðhring og brjóta niður íslensk gildi. Einhvertíma og einhversstaðar hefði fólk verið kallað leiguþý og jafnvel landráðamenn fyrir að vinna gegn hagsmunum eigin samfélags. Eins og gert er nú í Straumsvík,“ segir Guðmundur og fordæmir, sem fyrr segir, athæfi þeirra sem gangi í störfin og veit að það muni vera þeim til ævarandi skammar.


Tengdar fréttir

Yfirmenn Ísal skipa út áli í dag

Upplýsingafulltrúi Ísal reiknar með að yfirmönnum muni takast að skipa út að minnsta kosti hluta þess áls sem á að fara til útlanda. Formaður Hlífar efast um getu yfirmannanna.

Rannveig Rist við hafnarvinnu í Straumsvík

Útskipun áls hófst við höfnina í Straumsvík um klukkan tvö í dag en samkvæmt úrskurði sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu frá því í gærkvöldi mega 15 stjórnendur ISAL ganga í störf hafnarverkamanna sem lögðu niður störf í liðinni viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×