Tíu milljónir íbúa Delí án vatns næstu daga Bjarki Ármannsson skrifar 22. febrúar 2016 23:16 Heilar sextán milljónir manna búa í Delí og meirihluti þeirra stólar á vatnsleiðsluna sem nú er skemmd. Vísir/EPA
Rúmlega tíu milljónir manna í Delí, höfuðborg Indlands, eru án vatns eftir að mótmælendur þar í borg skemmdu leiðslu sem sér stórum hluta borgarinnar fyrir vatni. Öllum skólum borgarinnar hefur verið lokað vegna vatnsskortsins, sem talið er að muni standa yfir í þrjá til fjóra daga. Mótmælendurnir eru úr röðum Jata, þjóðarbrots sem fer fram á aukin tækifæri til menntunar og starfa frá stjórnvöldum. Jatarnir búa flestir í norðurhluta Indlands og eru nokkuð ofarlega í stéttarkerfi landsins. Ákveðinn kvóti starfa og skólaplássa á Indlandi hefur frá árinu 1991 þurft að fara til lægri stétta en mótmælin nú eru tilkomin vegna þess að Jatar heimta að fá hlutdeild í þessum kvóta.Að því er breska ríkisútvarpið greinir frá, hafa mótmælin staðið yfir í þrjá daga og kostað sextán manns lífið. Auk þess hafa hundruð manna særst. Heilar sextán milljónir manna búa í Delí og meirihluti þeirra stólar á vatnsleiðsluna sem nú er skemmd. Íbúar höfðu margir hverjir gert ráðstafanir vegna hótana mótmælenda um að ráðast á leiðsluna og safnað vatni undanfarna daga. Það er þó ekki talið nægja íbúunum þar til hægt verður að koma vatni til þeirra á ný. Mótmælendurnir hafa komið upp vegartálmum við borgina og segjast ekki ætla að taka þá niður fyrr en komið er til móts við kröfur þeirra.
Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Sjá meira