Má ekki bera vitni gegn meintum nauðgara sínum í Barnahúsi Bjarki Ármannsson skrifar 16. febrúar 2016 23:40 Frá Barnahúsi. Vísir/Valli
Andlega fötluð ung kona fær ekki að gefa skýrslu í Barnahúsi í máli ríkissaksóknara gegn manni sem gefið er að sök að hafa nauðgað henni og áreitt kynferðislega. Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Héraðsdóms Reykjaness þess efnis. Manninum er í ákæru gefið að sök að hafa nýtt sér andlega fötlun ungu konunnar þegar hann hafði með henni kynferðismök og káfaði á kynfærum hennar í fjögur skipti snemma árs 2013. Konan er þroskaskert og í mati geðlæknis sem liggur fyrir dómi segir að hún sé á ýmsan hátt barnaleg. Greindarvísitala hennar sé í kringum 70 og hún sé með töluverða skerðingu á minni. Aldur konunnar hefur verið útmáður úr úrskurði héraðsdóms sem birtur var á netinu í dag en í kröfu réttargæslumanns hennar segir að umönnunaraðilar telji þroska hennar á við sex eða sjö ára barn. Réttargæslumaður konunnar óskaði eftir því að skýrslutaka af henni færi fram í Barnahúsi en líkt og fyrr segir var því hafnað. Meginregla sakamálalaga er sú að öllum sem eru orðnir fimmtán ára er skylt að koma fyrir dóm nema þeir komist ekki vegna veikinda eða svipaðra aðstæðna. Litið var til þess að hinn ákærði hefur samþykkt að víkja úr dómsal á meðan hún gefur skýrslu, þinghald sé lokað og fallist hafi verið á að bæði réttindagæslumaður konunnar og systir hennar verði henni til halds og trausts í dómsal. Þannig hafi verið reynt að koma til móts við þarfir hennar um þægilegt og öruggt umhverfi.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ Sjá meira