Háskóli Íslands hefur glatað trausti þingmanna - Mikil reiði í þingmannahópnum Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 18. febrúar 2016 21:36 Vísir „
Eftir þessa málsmeðferð hefur Háskóli Íslands glatað trausti mínu. Þess vegna er óhjákvæmilegt að velta upp hlutverki Háskóla Íslands og hvort hann sé fær um að halda úti sinni starfsemi á Landsbyggðinni,“ segir Haraldur Einarsson, þingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Þetta segir hann vegna ákvörðunar háskólaráðs Háskóla Íslands í dag að færa íþróttakennaranámið frá Laugarvatni til Reykjavíkur. „Þá er hún ekki einskorðuð við íþróttanám að Laugarvatni heldur gefur tóninn um það sem á eftir mun fylgja, því ef einangruð hagræðingarsjónarmið einstakra stofnana, án tillits til heildarhagsmuna, verða alls ráðandi er ljóst að skammt mun verða í að menntastofnanir á landsbyggðinni leggist meira og minna af, sem og önnur starfsemi ríkisins utan höfuðborgarsvæðisins. Það er því augljóst að þessi ákvörðun getur ekki eingöngu verið innri ákvörðun skólans. Núna hef ég áhyggjur af því að öll störf á vegum HÍ verði flutt til Reykjavíkur.“Sjá einnig: Nám í íþrótta- og heilsufræði verður flutt frá Laugarvatni til Reykjavíkur Aðrir þingmenn kjördæmisins hafa líka skoðun á málinu. „Niðurstaða háskólaráðs er gríðarleg vonbrigði. Ég vonaði og trúði því, að með samtakamætti heimamanna, þingmanna kjördæmisins og allra velunnara skólans, þá næðum við að draga þessi hugmynd til baka,“ segir Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. „Færsla skólans frá Laugarvatni er mikil blóðtaka fyrir samfélagið. Ég harma þessa niðurstöðu.“Oddný Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar segist einnig vera ósátt við niðurstöðuna. „Niðurstaðan er óásættanleg vegna þess að ekki var búið að reyna til þrautar að efla skólastarfið að Laugarvatni og laða að fleiri nemendur. Þetta er mál sem háskólinn, sveitarfélagið og ráðuneyti menntamála og byggðamála hefðu átt að gefa sér tíma í að skoða betur. Málið varðar bæði menntapólitík og byggðapólitík en ekki aðeins rekstur Háskóla Íslands,“ segir Oddný.Frá Laugarvatni.Vísir/Magnús HlynurUnnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir niðurstöðuna vera gríðarleg vonbrigði. „Það er ömurlegt til þess að vita að ekki sé vilji hjá Háskóla Íslands, sem kallar sig háskóla allra landsmanna, að efla námið að Laugarvatni. Við þingmenn kjördæmisins lýstum yfir vilja okkar til að koma bæði að vinnslu, útfærslu og eftirfylgni þeirra breytinga sem nauðsynlegar eru til að efla námið að Laugarvatni. Sá vilji okkar var að engu hafður hjá yfirstjórn HÍ. Nú er ljóst að HÍ hefur engan áhuga né metnað til að halda úti námi á landsbyggðinni,“ segir Unnur Brá.Sjá einnig: Flaggað í hálfa stöng að LaugarvatniSetja fjölda heimila í uppnám „Þetta eru afar slæmar fréttir og mikil vonbrigði að ekki skuli vera tekið tillit til þeirra óska að fresta þessari ákvörðun um eitt ár. Mér líður eins og að þetta sé búið að vera í undirbúningi lengi og sannfærðist enn frekar um það eftir að hafa hitt forsvarsmenn skólans að Laugarvatni,“ segir Páll Valur Björnsson, þingmaður Bjartrar framtíðar. „Að sögn hafa þeir lagt fram margar tillögur til þess að efla og styrkja starfið á staðnum en talað fyrir daufum eyrum. Það er kaldhæðni örlaganna að „ríkisstjórn heimilanna“ eins og hún kallar sig og kennir sig við Laugarvatn skuli ætla að láta það viðgangast að setja eigi fjölda heimila í Bláskógabyggð í uppnám, að ríkisstjórnin sem ætlaði að hafa íslenska þjóðmenningu í hávegum og leggja áherslu á rannsóknir og fræðslu skuli ætla að slá af skóla sem hefur verið í fararbroddi í íþrótta og heilsufræðum á Íslandi síðan 1932,“ segir Páll Valur. „Þetta er ríkisstjórnin sem leggur áherslu á mikilvægi íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsmál og samþættingu leiks og náms eftir því sem kostur er og telur mikilvægt að stuðla að fjölbreyttum atvinnutækifærum um allt land, m.a. með dreifingu opinberra starfa. Nei þetta er frekar dapurlegt og við heyrðum í fyrirspurnatíma á Alþingi í dag að menntamálaráðherra og ríkisstjórnin þvær hendur sínar af þessum gjörningi. Það hefur verið sterk samstaða hjá þingmönnum kjördæmisins í þessu máli og vonandi höfum við ekki sagt okkar síðasta orð og munum halda áfram að berjast fyrir frekari háskólastarfi á Laugarvatni.“Fyrst og fremst dapurleg staðreynd „Það er fyrst og fremst dapurleg staðreynd að Háskóli Íslands standi að því að leggja niður 84 ára sögu íþróttakennaranáms að Laugarvatni. Allir þingmenn kjördæmisins hafa átt í samskiptum við HÍ og komið þeim upplýsingum til þeirra að við myndum standa heilshugar við bakið á þeim að efla íþróttakennaranámið og/eða annað háskólanám að Laugarvatni og nýta þau tækifæri sem fram koma m.a í skýrslu sem HÍ lét gera,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.Sjá einnig: Ráðherra harðorður: „Hver þorir í samstarf við Háskóla Íslands?“ „Ljóst er að aðalástæða þess að aðsókn hefur minnkað er lenging námsins úr 3 árum í 5. Ekkert virðist hlustað á núverandi nemendur sem vilja að skólinn sé áfram að Laugarvatni vegna fagleg náms, ódýrar fyrir þau og öflugs samfélags nemanda. Þessi ákvörðun Háskólaráðs er mikið högg fyrir samfélagið að Laugarvatni Bláskógabyggð,“ segir Sigurður Ingi.Háskólinn málaði sig út í horn „Ég tel að með þessari ákvörðun hafi Háskólinn málað sig út í horn með þær hugmyndir að sameina Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Skólanum er ekki treystandi fyrir að stuðla að háskólamenntun á landsbyggðinni. Ég harma þessi málalok,“ segir Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins.
Tengdar fréttir Flaggað í hálfa stöng að Laugarvatni Í bréfi frá Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, til starfsmanna segir að aðstaða skólans verði áfram nýtt í þágu háskólans. 18. febrúar 2016 17:52 Ráðherra harðorður: „Hver þorir í samstarf við Háskóla Íslands?“ Fundur háskólaráðs hófst klukkan 13 en að honum loknum verður framtíð íþróttakennaranáms á Laugarvatni ljósari. 18. febrúar 2016 13:09 Nám í íþrótta- og heilsufræði verður flutt frá Laugarvatni til Reykjavíkur Aðsókn að náminu hefur farið dvínandi og verið óviðunandi um nokkurn tíma. 18. febrúar 2016 16:49 Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira
Flaggað í hálfa stöng að Laugarvatni Í bréfi frá Jóni Atla Benediktssyni, rektor Háskóla Íslands, til starfsmanna segir að aðstaða skólans verði áfram nýtt í þágu háskólans. 18. febrúar 2016 17:52
Ráðherra harðorður: „Hver þorir í samstarf við Háskóla Íslands?“ Fundur háskólaráðs hófst klukkan 13 en að honum loknum verður framtíð íþróttakennaranáms á Laugarvatni ljósari. 18. febrúar 2016 13:09
Nám í íþrótta- og heilsufræði verður flutt frá Laugarvatni til Reykjavíkur Aðsókn að náminu hefur farið dvínandi og verið óviðunandi um nokkurn tíma. 18. febrúar 2016 16:49