Heimildir til innleiðingar nýrra lyfja rýmkaðar verulega Heimir Már Pétursson skrifar 19. febrúar 2016 15:05 Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Vísir/Pjetur
Ríkisstjórnin samþykkti í morgun tillögu heilbrigðisráðherra þess efnis að fela Fjármála- og efnahagsráðherra í samráði við heilbrigðisráðherra að tryggja fjármagn í því skyni að unnt verði að taka í notkun fleiri ný lyf á árinu 2016. Í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir að fjárheimildir til S-merktra lyfja verði 6.3 milljarðar króna. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að Lyfjagreiðslunefnd hafi fengið yfirlit yfir þau forgangslyf sem Landsspítalinn óski eftir að fá að innleiða á þessu ári. Á þeim lista séu m.a. mörg ný krabbameinslyf. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra setti 100 milljónir af fé ráðuneytisins til þessara mála í janúar en nú hefur ríkisstjórnin veitt viðbótar fjárheimild. Heilbrigðisráðherra segir að nú muni hann fara yfir málin með formanni lyfjagreiðslunefndar á næstu dögum. „Það voru mjög knappar heimildir í fjárlögum ársins 2016. Þegar við höfðum rýnt í þessar áætlanir betur og óskir spítalana þá kemur í ljós að þörfin er meiri en rúmast innan þeirra heimilda sem við fengum í fjárlögum. Við erum að leita allra leiða til að tryggja það að geta mætt þessum óskum,“ segir Kristján Þór. „Það er breytilegt hve áríðandi þetta er en við munum leita leiða til að tryggja það að við getum innleitt forgangslyf.“
Mest lesið Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Innlent Óljóst hvort þyrlan sé fundin Erlent Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Fólk er bara að bíða“ Innlent Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Erlent Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Innlent Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Erlent Segir Helgu fara með rangt mál Innlent Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Fleiri fréttir Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Segir Helgu fara með rangt mál Þekkir dæmi um endalaus uppköst og garnalömun vegna lyfjanna Konurnar hafi gert allt til að setja ekki svartan blett á starfsemina Með vopn og fíkniefni í útistöðum við dyravörð Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Sjá meira